Víkin - Sjóminjasafn í Reykjavík
Á döfinni
Íslenska vitafélagið
Íslenska vitafélagið heldur þriðja fund sinn 4. febrúar kl. 20:00. Fyrirlesarar kvöldsins verða Agnes Stefánsdóttir fornleifafræðingur hjá Fornleifavernd ríkisins og Finnbogi Bernódusson safnvörður í Ósvör. Aðgangur ókeypis.
Varðskipið Óðinn 50 ára
Þann 27. janúar voru liðin 50 ár síðan varðskipið Óðinn kom til Íslands. Af því tilefni verður frítt fyrir alla um borð í skipið og á safnið helgina 30.-31. janúar. Fyrrverandi Óðinsmenn verða í skipinu, tilbúnir að fræða gesti um lífið um borð.
Opnunartími
Opið í vetur:
þri.-fös. kl. 11:00-17:00
lau.-sun. kl. 13:00-17:00
Leiðsagnir um skipið ef það eru 3 gestir eða fleiri















