Dráttar- og lóðsbáturinn Magni

Dráttar- og lóðsbáturinn Magni var smíðaður árið 1955. Hann var fyrsta stálskipið sem smíðað var á Íslandi og gengdi hlutverki sínu fyrir Reykjavíkurhöfn með miklum sóma allt til ársins 1987.
Magni er 183.97 brúttórúmlestir, 28.2 metrar á lengd, 8.0 metrar á breidd og togkraftur hans var um 10 tonn. Í honum er 1000 ha. Deutz aðalvél ásamt tveimur ljósvélum, sem eru tvígengisvélar. Vélar skipsins eru ekki gangfærar í dag. Hjálmar R. Bárðarson hannaði bátinn sem var smíðaður af Stálsmiðjunni hf. í Reykjavík. Magni var megin dráttarbátur Reykjavíkurhafnar allt frá því að hann var afhentur fram til ársins 1987. Á þessum tímabili var báturinn jafnt notaður sem dráttarbátur á hafnasvæðinu, nýttur til björgunar- og öryggisþjónustu við skip á Faxaflóanum, vatnsafgreiðslu og eins til að brjóta ís á Sundunum þegar þess þurfti enda byggður sem ísbrjótur.
Stjórn Faxaflóahafna sf. ákvað að fela Víkinni Magna til varðveislu og fullra umráða. Afhendingu Magna fylgja engar kvaðir aðrar en þær að Sjóminjasafnið taki við honum til varðveislu og nýti í þágu safnins þar sem hann liggur við Safnbryggjuna í Bótinni. Með því verður saga bátsins tengd starfsemi Sjóminjasafnsins.





