Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Á döfinni

<< Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13

14. nóvember 2006

Hundraðasti gefandinn

Konráð Sæmundsson, fyrrverandi sjómaður, kom 14. nóvember sl. færandi hendi með muni til Víkurinnar – Sjóminjasafnsins í Reykjavík og varð hundraðasti maðurinn frá upphafi sem gefur safninu muni. Um var að ræða þrjú skipslíkön sem hann hafði smíðað sjálfur. Tvö þeirra voru af skipum sem hann hafði verið á nokkrar vertíðir á síld, Sjöstjarnan EA 365 og Ester EA 8. Þriðja skipið er frá því fyrir hans tíð, þ.e. af kútter.

 gefandi 100 litil

27. október 2006

Hollvinasamtök Óðins stofnuð

Hollvinasamtök varðskipsins Óðins voru stofnuð 26. október s.l. að viðstöddu fjölmenni í Víkinni – Sjóminjasafninu í Reykjavík. Björgum Óðni, sögunnar vegna eru einkunnarorð þessara nýju samtaka, sem stofnuð voru að frumkvæði Sjómannadagsráðs eftir tillögu Guðmundar Hallvarðssonar, þingmanns og formanns ráðsins. Markmið samtakanna er að gera Óðinn að sögusafni þorskastríðsáranna og því komið fyrir í höfninni framan við Sjóminjasafnið.guðmhallvlitil

 

18. október 2006

Samband íslenskra sjóminjasafna stofnað

Stofnfundur Sambands íslenskra sjóminjasafna var haldinn í Sjóminjasafninu í Reykjavík sigrun sis15. október s.l. að viðstöddum fulltrúum þeirra safna sem undirrituðu lög og stofnskrá sambandsins. Á fundinum kom fram að stofnun sambandsins er stórt skref sem aðstandendur vonast til að skili gifturíkum árangri. Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, stjórnaði stofnfundinum og taldi stofnun sambandsins vera "afar farsælt skref" við uppbyggingu sjóminjasafna á Íslandi.

18. september 2006

BÚR-húsið í endurnýjun lífdaga

Óhætt er að fullyrða að gamla BÚR Nýtt safnhúsið við Grandagarð sé í mikilli endurnýjun lífdaga um þessar mundir. Sjóminjasafnið er nú langt komið með að innrétta og taka í notkun allt sitt húsnæði og einnig er suðurendi hússins tilbúinn undir fyrirtækin sem þar starfa. Þá hefur verið mikið líf og fjör í húsinu síðustu vikur og mánuði, Matarsetur að taka á sig mynd á neðri hæð og leiksýningar gengið fyrir fullum sal. 

1. júní 2006

Höfðingleg gjöf til Sjóminjasafnsins

Hinrik Bjarnason og Kolfinna Bjarnadóttir hafa afhent Víkinni – Sjóminjasafninu í Reykjavík, minjasafn sitt sem þau hafa komið sér upp í áratugi. Um er að ræða nærri 700 muni. Formleg afhending fór fram 31. maí sl. og um leið var opnuð sýning á þessu einstaka minjasafni hjónanna sem ber heitið Úr ranni forfeðranna. Þessi höfðinglega gjöf er mikill virðingarvottur við ársgamla sjálfseignarstofnun um Sjóminjasafn í Reykjavík.

 

Opnun HinKol

Hinrik Bjarnason flytur ræðu við afhendinguna. Sigrún Magnúsdóttir, forstöðumaður Sjóminjasafnsins, fylgist með.

24. apríl 2006

Sjóminjasafnið tekur að sér varðveislu muna frá Siglingastofnun

Miðvikudaginn 19. apríl s.l. undirrituðu Sigrún Magnúsdóttir, forstöðumaður Sjóminjasafnsins, og Hermann Guðjónsson, siglingamálastjóri, samning milli Siglingastofnunar Íslands og safnsins um varðveislu gripa frá Siglingastofnun. Í samningnum felst að Sjóminjasafnið tekur minjar og muni frá Siglingastofnun til varðveislu og skráningar og mun nota þá í miðlun og sýningarhaldi eftir því sem tilefni er til hverju sinni. Ýmis konar munir og minjar frá starfseminni hafa varðveist í fórum Siglingastofnunar.

 

27. mars 2006

Ný ásýnd safnsins

Stjórn Faxaflóahafna hefur ákveðið að fjármagna á þessu ári klæðningu og einangrun á húsnæði Sjóminjasafnsins. Undirbúningur framkvæmdanna er þegar hafinn og er nú unnið að hönnun á klæðningu og framtíðarútliti gamla BÚR hússins. Hér að neðan má sjá hugmynd að útliti hússins með nýjum inngangi frá höfninni, en þar verður aðalinngangur safnsins til framtíðar litið, þó svo að áfram verði inngangur frá götunni. Nýji inngangurinn er hannaður með nýtt skipulag við höfnina sem taka mun við þegar nýja Mýrargötuskipulagið verður orðið að raun innan fárra missera.

 

Nýtt safn

16. janúar 2006

Vilja varðskipið Óðinn til Sjóminjasafnsins

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa hrundið af stað undirskrifasöfnun þar sem þess er farið á leit við dómsmálaráðherra og Alþingi að varðskipið Óðinn verði varðveitt í núverandi ástandi og fært Sjóminjasafninu í Reykjavík til varðveislu. Rafn Sigurðsson, skipverji á varðskipinu Ægi, segir flesta starfsmenn Landhelgisgæslunnar þegar hafa skrifað undir áskorunina og að reynt verði að ná til sem flestra sem vilji styðja þennan málstað.

 

29. nóvember 2005

Nýr vefur Sjóminjasafnsins

Þann 30. nóvember, þegar Víkin - Sjóminjasafnið í Reykjavík, fagnaði ársafmæli safnsins, var kynntur nýr vefur safnsins. Á vefnum verður að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi safnsins og þá þjónustu sem þar er í boði. Þá er fjallað ítarlega um sýningar safnsins og í boði verður ýmiskonar ítarefni tengt sýningum safnsins fyrir áhugasama.

29. október 2005

Sjóminjasafnið í heimspressunni

Breska dagblaðið Independent fjallaði á mjög jákvæðan hátt um Sjóminjasafnið í Reykjavík í vefútgáfu blaðsins 30. október sl. Greinin var umfjöllun um 10 áhugaverðar borgir í Evrópu og var Reykjavík þeirra á meðal. Í greininni segir að Reykjavík sé skemmtilegur staður að heimsækja en fólki er ráðlagt að gefa sér tíma frá gleðskap og heimsækja Víkina, nýja Sjóminjasafnið í Reykjavík, og er safninu og togarasýningunni lýst sem mjög áhugaverðum stað að heimsækja.

<< Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13

Senda á Facebook

Viðburðatal