Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

30. september 2009

Ný sýning

Í gær, 29. september, var opnuð ný sýning á safninu sem kallast Snemma beygist krókurinn. Er þetta yfirlitsýning á verkum Bjarna Jónssonar listmálara. Sýningin var sett upp í tilefni af því að Bjarni hefði orðið 75 ára 15. september s.l.

 

b.j.-litil

15. september 2009

Vetraropnun

Frá og með 16. september breytist opnunartími safnsins. Yfir veturinn mun það vera opið frá kl.11:00-17:00 alla virka daga nema lokað mánudaga. Um helgar verður safnið opið frá kl. 13:00-17:00. Safnbúð og Safnkaffi eru opin á sama tíma og safnið.

 

hus-utan-litid

20. ágúst 2009

Menningarnótt 2009

Víkin býður gesti velkomna á safnið á Menningarnótt. Að venju verður mikið í gangi á safninu og í tilefni dagsins er frítt inn. Gestir geta gengið um og skoðað hinar fjölbreyttu sýningar sem safnið hefur uppá að bjóða. Safnkaffið mun hafa ljúffengar veitingar til sölu og verður hægt að njóta þeirra við eitt besta útsýnið í Reykjavík. Varðkipið Óðinn verður opið og aldrei að vita nema að hægt verði að finna einhverja af fyrrverandi áhafnarmeðlimum skipsins um borð. Þegar kvölda tekur verður slegið upp dansleik á safninu og mun Harmonikkufélag Reykjavíkur leika fjöruga tónlist.

 

profile-litil

5. ágúst 2009

Ţjóđlegt Safnkaffi fćr góđar móttökur

safnkaffi litil

 

Nýtt Safnkaffi var opnað í Víkinni í sumarbyrjun og hefur það fengið afar jákvæðar viðtökur. Enda býður Safnkaffið upp á frábærar heimatilbúnar veitingar og einstakt útsýni yfir gömlu höfnina! Í veitingunum er lögð megin áhersla á þjóðlega rétti sem gerðir eru á staðnum úr úrvals hráefnum. Má þar m.a. nefna heimabakað rúgbrauð með bragðmiklu hangikjöti og innan skamms verður boðið upp á heimalagaðar íslenskar súpur í hádeginu og annað fiskmeti eins og saltfiskbollur. Allir geta heimsótt Safnkaffið eingöngu og notið þjóðlegra veitinga og hins stórkostlega útsýnis yfir höfnina, annað hvort innandyra eða utandyra í góðu veðri á útsýnispalli safnsins!

9. júlí 2009

Hinn íslenski safnadagur 12. júlí

Sunnudaginn 12. júlí næstkomandi verður íslenski safnadagurinn haldinn hátíðlegur. Frítt verður inn á safnið og girnilegar kökur til sölu á safnkaffinu. Óðinn verður opinn fyrir gesti og gangandi.

 

utandyra-litil

 

Frábært safn fyrir alla fjölskylduna, verið velkomin!

18. júní 2009

Nýjar sýningar

Á Hátíð hafsins voru opnaðar þrjár nýjar sýningar. Það eru sýningarnar Saga seglanna, Hafnarfjarðarhöfn í 100 ár sem er farandsýning í nýjasta sal safnsins og sýning frá félagi íslenskra bútasaumskvenna Hafið.

 

seglasyning litil

10. júní 2009

Hátíđ hafsins

Hátíð hafsins fór fram helgina 6.-7. júní og heppnaðist með eindæmum vel. Borgarbúar voru duglegir að mæta hingað á Grandann til að taka þátt í hátíðarhöldunum og fjölbreytt dagskrá skemmti allri fjölskyldunni.

hh-odinn-litill

1. júní 2009

Hátíđ hafsins

Ţað er mikið um að vera á Víkinni næstu helgi, 6.-7. júní. Hátíð hafsins verður haldin á Grandanum með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá og heilmikið verður um að vera á safninu. Nýjar sýningar verða opnaðar, meðal annars sýningin Hafið á vegum íslenska bútasaumsfélagsins og kaffihús safnsins verður opnað. Frítt verður á safnið alla helgina og allir velkomnir.

7. maí 2009

Breytingar á safninu

Víkin-Sjóminjasafnið verður lokað frá 20.-29. maí vegna breytinga. Við opnum aftur 30. maí með nýrri ljósmyndasýningu og glæsilegu safnkaffi þar sem verður hægt að njóta skemmtilegasta útsýnisins í Reykjavík.

 

utsyni

15. apríl 2009

Ferđafagnađur 18. apríl

Sjóminjasafnið í Reykjavík býður gesti og gangandi velkomna í safnið á Ferðafagnað 2009, laugardaginn 18. apríl. Skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna og frítt er á safnið.

midsalur litil


Senda á Facebook

Viđburđatal