Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Á döfinni

10. desember 2007

Máttarstólpar safnins endurnýja styrktarsamninga

Máttarstólpar Sjóminjasafnsins, Eimskip, Glitnir og HB Grandi, hafa undirritað nýja samninga um áframhaldandi stuðning við rekstur og uppbyggingu safnsins. Sjóminjasafnið fagnaði um síðustu mánaðamót þriggja ára afmæli sínu. Máttarstólparnir hafa stutt við safnið frá upphafi og með nýjum samningum er handsalaður samningur um rekstrarstuðning til næstu þriggja ára. Stuðningur máttarstólpanna er, eins og gefur að skilja, afar mikilvægur í uppbyggingu Sjóminja­safnsins, sem hefur vaxið verulega fiskur um hrygg síðustu þrjú árin og er framtíð safnsins björt á þessum tímamótum.

 Undirritun Eim

10. desember 2007

Ný stjórn Sjóminjasafnsins tekur við

Ný stjórn Víkurinnar - Sjóminjasafnsins í Reykjavík var kosin í dag, mánudaginn 10. desember. Nýja stjórn skipa Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður, Árni Þór Sigurðsson varaformaður, Margrét Sverrisdóttir, Ágúst Ágústsson og Ingibjörg Björnsdóttir. Í varastjórn voru skipuð þau Kjartan Magnússon, Alfreð Þorsteinsson, Sigrún Elsa Smáradóttir, Jón Þorvaldsson og Guðný Gerður Gunnarsdóttir. Ny stjorn litil

3. desember 2007

Ný sýning - Lífæð lands og borgar - opnuð

Fjölmenni var í Víkinni - Sjóminjasafninu í Reykjavík þegar fyrsta sýningin var opnuð í Bryggjusalnum, nýjum sýningarsal safnsins, þann 1. desember s.l. Sýningin er sett upp í tilefni af 90 ára afmæli Reykjavíkurhafnar og hlaut hún yfirskriftina Lífæð lands og borgar. Opnun sýningarinnar markaði jafnframt mikilvæg tímamót í stuttri sögu Sjóminjasafnsins, sem fagnaði þriggja ára afmæli sínu 30. nóvember s.l., því samtímis var tekinn í notkun nýr sérinngangur safnsins og nýtt 250 fermetra móttrými á neðri hæð.Frá sýningunni

3. desember 2007

Gufuvél tekin í hús í miðjum framkvæmdum

Síðustu mánuði hefur mikið gengið á í Sjóminjasafninu, framkvæmdir á fullu bæði innandyra og utan við breytingar á húsnæðinu og uppsetningu sýningar í tilefni af 90 ára afmæli Reykjavíkurhafnar. Nú er búið að taka í notkun nýjan aðalinngang safnsins og nýjan móttökusal á neðri hæð. Þar var öll framhliðin nánast brotin úr húsinu og ný útbygging komin í staðinn. Þegar veggirnir voru brotnir og húsið stóð galopið var tækifærið nýtt til þess að taka inn 7 tonna þunga gufuvél frá árinu 1917, sem sett var á sínum tíma í línuveiðarann Sigríði RE frá Reykjavík. Gufvélin er í eigu Þjóðminjasafnsins, sem lánaði Sjóminjasafninu vélina og prýðir hún nú nýtt anddyri á 1. hæð. Gufuvel II

3. október 2007

Sjóminjasafnið tekur stakkaskiptum

Þessa dagana standa yfir miklar framkvæmdir við húsnæði Sjóminjasafnsins, bæði innan dyra og utan. Safnið er að innrétta nýtt móttöku- og sýningarými á neðri hæð og verður tekinn í notkun nýr inngangur þegar safnið opnar aftur. Stefnt er að enduropnun safnsins 30. nóvember n.k., en þá verður opnuð sýning í nýjum Bryggjusal í tilefni af 90 ára afmæli Reykjavíkurhafnar. Þá er einnig verið að innrétta nýja sali á efri hæð, en þar verða opnaðar sýningar á næsta ári.

15. ágúst 2007

Menningarnótt í Vesturbæ

Sjóminjasafnið tekur að vanda þátt í Menningarnótt Reykjavíkurborgar, en að þeim degi loknum verður safnið lokað í þrjá mánuði. Það verða því síðustu forvöð að heimasækja safnið þetta sumarið og á Menningarnótt er boðið upp á skemmtilega dagskrá í Sjóminjasafninu, sem að stórum hluta er unnin í samstarfi við Þjónustumiðstöð Vesturbæjar. Í Sjóminjasafninu verður m.a. slegið upp bryggjuballi og Hildigunnur Sigurðardóttir fatahönnuður heldur sína fyrstu tískusýningu hér á landi. Í þá fatalínu sem Hildigunnur sýnir nú hefur hún sótt hugmyndir sínar í sjófatnað fyrri tíma.

24. júlí 2007

Frítt inn til 18. ágúst!

Stjórn Sjóminjasafnsins hefur ákveðið að fella niður aðgangseyri að safninu fram til 18. ágúst, vegna þeirra framkvæmda sem nú standa yfir við húsnæði safnsins. Frá og með 19. ágúst verður safninu lokað fram í nóvember, en þá verður tekin í notkun nýr móttökusalur á neðri hæð um leið og opnuð verður ný sýning í svokölluðum Bryggjusal í fyrrum vélarsal BÚR. Sýningin er sett upp í tilefni af því að á þessu ári verða 90 árum liðin frá því að fyrstu framkvæmdum lauk við Reykjavíkurhöfn, en gerð Reykjavíkurhafnar á árunum 1913 til 1917 voru stærstu framkvæmdir Íslandssögunnar á þeim tíma.

4. júní 2007

Frábær Sjómannadagur í Sjóminjasafninu

Metaðsókn var að Sjóminjasafninu á Sjómannadaginn, þegar vel á annað þúsund gesta komu til að skoða sýningar safnsins og njóta kaffiveitinga í boði hússins. Margir skoðuðu af áhuga netahnýtingar og nýja sýningu um sögu BÚR og mikla athygli vakti sjósetning á árabátnum Örlygi, sem smíðaður var s.l. vetur í húsnæði Sjóminjasafnsins.

 

á hatid hafs 07 

4. júní 2007

Borgarstjóri opnar sýningu um BÚR

Formleg sumaropnun Sjóminjasafnsins hófst á Hátið hafsins laugardaginn 2. júní með því að Vilhjálmur Þ. Viðhjálmsson, borgarstjóri og varaformaður í stjórn Sjóminjasafnsins, opnaði nýja sýningu sem sett hefur verið upp í tilefni þess að 60 ár eru nú liðin frá formlegri stofnun Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Viðstaddir opnunina voru nokkrir fyrrum starfsmenn BÚR og bauð borgarstjóri fjórum fyrrum BÚR stelpum að ganga fyrst inn á sýninguna.

 

villi bydur a bur

4. maí 2007

Sjóminjasafnið lokað vegna framkvæmda fram að Hátið hafsins

Helgin 5.-6. maí var síðasta sýningarhelgi vorsins í Sjóminjasafninu og að henni lokinni var safninu lokað vegna framkvæmda og uppsetningar á sýningum. Safnið opnar aftur á Hátíð hafsins 2. júní. Þá verða tvær sýningar opnaðar, önnur fjallar um sögu Reykjavíkurhafnar í tilefni af 90 ára afmæli hafnarinnar á þessu ári og hin sýningin mun fjalla um vinnslu fiskafurða á vegum Bæjarútgerðar Reykjavíkur og fiskvinnsluhúsið að Grandagarði 8, sem safnið starfar í. Á þessu ári eru 60 ár liðin frá upphafi BÚR og byggingar hússins, sem þá var reist fyrir Fiskiðjuver ríkisins.


Senda á Facebook

Viðburðatal