Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

9. október 2008

Höfđingleg gjöf til safnsins

Sjóminjasafninu barst á dögunum höfđingleg gjöf frá einum af velunnurum safnsins, Ásgeiri Long. Um er ađ rćđa einstaka völundarsmíđ Ásgeirs, sem er nákvćmt módel af gufuvél úr nýsköpunartogaranum Júlí GK frá Hafnarfirđi, en Ásgeir sigldi á sínum tíma međ Júlí og vann í vélarrúminu. Mikil vinna liggur á bak viđ gerđ slíks módels og er ekki fráleitt ađ ćtla ađ greiđa ţyrfti um eina milljón króna fyrir vinnuna viđ gerđ ţess.

 

long gufuv litil

9. október 2008

Veruleg fjölgun gesta

Veruleg fjölgun gesta Sjóminjasafnsins varđ á milli sumarmánađa 2007 og 2008. Nćrri lćtur ađ gestafjöldi hafi ţrefaldast á milli áranna, sé miđađ viđ fjölda gesta í júní, júlí og ágúst. Viđtökur hafa ţví veriđ framar vonum eftir ađ safniđ enduropnađi á Hátíđ hafsins um mánađarmótin maí/júní sl. Ţessi fjölgun hefur jafnframt átt sér stađ ţrátt fyrir ađ húsiđ sé í raun ennţá á byggingarstigi utandyra og allt ađgengi ađ safninu hefur veriđ erfitt sökum framkvćmda viđ byggingu ţriđju hćđar og klćđningar hússins.

 

ađsokn bryggja litil

24. september 2008

Horfnir sjávarhćttir - ţjóđháttamyndir Bjarna Jónssonar

Sjóminjasafniđ hefur opnađ sýningu á verkum Bjarna Jónssonar listmálara. Sýningin ber heitiđ Horfnir sjávarhćttir, en um er ađ rćđa 61 ţjóđháttamynd sem Bjarni hefur málađ og veita fólki einstćđa innsýn í menningu og starfshćtti árabátatímans á Íslandi. Bjarni Jónsson teiknađi flestar skýringarteikningar í ritverkinu Íslenskir sjávarhćttir og vann viđ ţađ međ Lúđvík Kristjánssyni í 27 ár. Afrakstur ţeirrar vinnu er jafnframt myndirnar sem eru á ţessari sýningu og sýna m.a. ţekktar gerđir íslensku áraskipanna og ţađ sem ţau snertir.

3. júní 2008

Metađsókn viđ enduropnun safnsins

Metađsókn var í Víkina ţegar safniđ var enduropnađ á Hátíđ hafsins eftir gagngerar breytingar og stćkkun á sýningarými safnsins. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, opnađi safniđ formlega ásamt Gísla Jónssyni, fyrrum starfsmanni BÚR, en ţeir félagar opnuđu einnig safniđ fyrir ţremur árum.

 

Klippt litil

3. júní 2008

Varđskipiđ Óđinn og Magni viđ safnbryggjuna

Varđskipiđ Óđinn hefur nú fengiđ nýtt hlutverk sem lifandi safn um ţorskastríđin og björgunarsögu Landhelgisgćslunnar. Skipiđ liggur viđ sérstaka bryggju sem nú mun tilheyra Sjóminjasafninu og verđa hluti ţess. Einnig hefur dráttar- og lóđsbáturinn Magni veriđ afhentur safninu til varđveislu og liggur hann einnig viđ safnbryggjuna.

 

óđinn kemur

3. júní 2008

Framkvćmdir á fullu skriđi

Framkvćmdir viđ stćkkun og breytingar á húsnćđi Sjóminjasafnsins standa nú yfir. Í vetur hafa stađiđ yfir gagngerar endurbćtur á elstu hlutum hússins og nú er móttökusalur kominn í notkun á neđri hćđ ţar sem áđur voru frystitćki og losun á slori.

Safn teikn frett


Senda á Facebook

Viđburđatal