Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

22. desember 2009

Gleđileg jól

jolakvedja-litil

14. desember 2009

Hugmyndasamkeppni

Ţann 11. desember síðast liðinn opnaði sýning á tillögum sem voru sendar í Hugmyndasamkeppni fyrir Gömlu höfnina og Örfirisey í Reykjavík. Meginmarkmið samkeppninnar var að fá fram frjóar og fjölbreyttar hugmyndir  um framtíðarnýtingu og framtíðarskipulag Gömlu hafnarinnar.

hofnin litil

2. desember 2009

5 ára afmćli safnsins

Ţann 30. nóvember síðastliðinn var því fagnað að liðin eru fimm ár frá formlegri stofnun safnsins. Af þessu tilefni var opnuð ný sýning, Minjar segja sögu. Þar er sýnt úrval muna og mynda úr geymslum safnsins. Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á það mikilvæga innra starf safnsins sem felst í skráningu, rannsóknum og varðveislu minja og mynda.

velsimi

1. desember 2009

Harmonikuball viđ hafiđ

Harmonikufélag Reyjavíkur og Víkin-Sjóminjasafnið efna til hátíðar á öðrum sunnudegi í aðventu þann 6. desember, sem er Nikulásarmessa. Gunnar Þorláksson stjórnar marseringu og hringdansi að hætti fyrri tíma milli kl. 15:00-17:00. 

 harmonikka

25. nóvember 2009

Spegill fortíđar - silfur framtíđar

Í vetur mun íslenska vitafélagið, félag um íslenska strandmenningu, halda fræðslukvöld sín hér á safninu. Fundirnir verða haldnir 1. fimmtudag hvers mánaðar fram að apríl.
Ţann 3. desember verður annar fundur félagsins haldinn og eru fyrirlesarar kvöldsins Sonja Sif Jóhannesdóttir og Hlíf Gylfadóttir. Fundurinn hefst kl. 20:00 og er opinn öllum.

bjarni-madur-batur-litil

2. nóvember 2009

Opinn borgarafundur og íslenska vitafélagiđ

Fimmtudaginn 5. nóvember verður nóg um að vera á safninu því hér verða haldnir tveir fundir. Sá fyrri er Opinn fundur um Grímsstaðavör og sá seinni er fyrsti fundur vetrarins hjá íslenska vitafélaginu.

utandyra-litil
 

26. október 2009

Sequence listahátíđ og Víkin

Ţann 31. október - 1. nóvember hefst Sequence listahátíðin. Eitt af þeim fjölmörgu atriðum sem sýnd verða um helgina verður á safninu. Það er atriði dansdúósins Prinz Gholam en það eru listamenn sem vinna með tengsl dans og myndlistar. Atriði þeirra verður á Safnkaffinu þann 31. október kl. 14:00 og er frítt inn á viðburðinn eins og aðra viðburði listahátíðarinnar.

 prinz gholam

9. október 2009

Björgum vs Óđni

Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir algerri niðurfellingu á framlagi til Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins, en það var 5 mkr. Það framlag hefur verið bráðnauðsynlegt til viðhalds og reksturs vs Óðins sem safns og hefur reyndar engan veginn dugað. Ljóst var strax í upphafi að framlagið þyrfti að vera 12 mkr., en Víkin-Sjóminjasafnið í Reykjavík og ósérplægnir sjálfboðaliðar hafa bætt upp það sem á hefur vantað.

 

óðinn m fána-litil

30. september 2009

Ný sýning

Í gær, 29. september, var opnuð ný sýning á safninu sem kallast Snemma beygist krókurinn. Er þetta yfirlitsýning á verkum Bjarna Jónssonar listmálara. Sýningin var sett upp í tilefni af því að Bjarni hefði orðið 75 ára 15. september s.l.

 

b.j.-litil

15. september 2009

Vetraropnun

Frá og með 16. september breytist opnunartími safnsins. Yfir veturinn mun það vera opið frá kl.11:00-17:00 alla virka daga nema lokað mánudaga. Um helgar verður safnið opið frá kl. 13:00-17:00. Safnbúð og Safnkaffi eru opin á sama tíma og safnið.

 

hus-utan-litid


Senda á Facebook

Viđburđatal