Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

26. október 2009

Sequence listahátíđ og Víkin

Ţann 31. október - 1. nóvember hefst Sequence listahátíðin. Eitt af þeim fjölmörgu atriðum sem sýnd verða um helgina verður á safninu. Það er atriði dansdúósins Prinz Gholam en það eru listamenn sem vinna með tengsl dans og myndlistar. Atriði þeirra verður á Safnkaffinu þann 31. október kl. 14:00 og er frítt inn á viðburðinn eins og aðra viðburði listahátíðarinnar.

 prinz gholam

9. október 2009

Björgum vs Óđni

Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir algerri niðurfellingu á framlagi til Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins, en það var 5 mkr. Það framlag hefur verið bráðnauðsynlegt til viðhalds og reksturs vs Óðins sem safns og hefur reyndar engan veginn dugað. Ljóst var strax í upphafi að framlagið þyrfti að vera 12 mkr., en Víkin-Sjóminjasafnið í Reykjavík og ósérplægnir sjálfboðaliðar hafa bætt upp það sem á hefur vantað.

 

óðinn m fána-litil


Senda á Facebook

Viđburđatal