Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

26. mars 2009

Spegill fortíđar - silfur framtíđar

Umfjöllunarefni síðasta fræðslukvölds Íslenska vitafélagsins í samvinnu við Sjóminjasafnið á þessum vetri er náttúru- og veðurþekking Íslendinga fyrr og nú annars vegar og auður Austfjarða hins vegar. Fyrri fyrirlestur kvöldsins heitir "Gaggi að kveldi tófa, garpar að morgni róa" og þar fjallar Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur um náttúru- og veðurþekkingu landsmanna fyrr og síðar. Í seinni fyrirlestrinum fjallar Hjörleifur Guttormsson í máli og myndum um strandminjar og menningarauð Austfjarða. Fræðslukvöldið verður haldið 2. apríl og hefst kl. 20.00.

12. mars 2009

Fjör á safninu

Líf og fjör hefur verið á safninu síðustu vikur. Skólakrakkar á öllum aldri hafa verið daglegir gestir og fengið leiðsögn um safn og skip.

 

krakkar i stefni-litil

10. mars 2009

Varđskipiđ Óđinn

Fram í júní verður varðskipið Óðinn bara opið um helgar. Einungis er hægt að skoða skipið með leiðsögumanni og eru farnar tvær ferðir á dag. Fyrri ferð kl. 14:00 og sú síðari kl. 15:00.

 

óðinn á hlið


Senda á Facebook

Viđburđatal