Á döfinni
20. ágúst 2009
Menningarnótt 2009
Víkin býður gesti velkomna á safnið á Menningarnótt. Að venju verður mikið í gangi á safninu og í tilefni dagsins er frítt inn. Gestir geta gengið um og skoðað hinar fjölbreyttu sýningar sem safnið hefur uppá að bjóða. Safnkaffið mun hafa ljúffengar veitingar til sölu og verður hægt að njóta þeirra við eitt besta útsýnið í Reykjavík. Varðkipið Óðinn verður opið og aldrei að vita nema að hægt verði að finna einhverja af fyrrverandi áhafnarmeðlimum skipsins um borð. Þegar kvölda tekur verður slegið upp dansleik á safninu og mun Harmonikkufélag Reykjavíkur leika fjöruga tónlist.
5. ágúst 2009
Ţjóđlegt Safnkaffi fćr góđar móttökur
Nýtt Safnkaffi var opnað í Víkinni í sumarbyrjun og hefur það fengið afar jákvæðar viðtökur. Enda býður Safnkaffið upp á frábærar heimatilbúnar veitingar og einstakt útsýni yfir gömlu höfnina! Í veitingunum er lögð megin áhersla á þjóðlega rétti sem gerðir eru á staðnum úr úrvals hráefnum. Má þar m.a. nefna heimabakað rúgbrauð með bragðmiklu hangikjöti og innan skamms verður boðið upp á heimalagaðar íslenskar súpur í hádeginu og annað fiskmeti eins og saltfiskbollur. Allir geta heimsótt Safnkaffið eingöngu og notið þjóðlegra veitinga og hins stórkostlega útsýnis yfir höfnina, annað hvort innandyra eða utandyra í góðu veðri á útsýnispalli safnsins!





