Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

1. júní 2006

Höfđingleg gjöf til Sjóminjasafnsins

Hinrik Bjarnason og Kolfinna Bjarnadóttir hafa afhent Víkinni – Sjóminjasafninu í Reykjavík, minjasafn sitt sem ţau hafa komiđ sér upp í áratugi. Um er ađ rćđa nćrri 700 muni. Formleg afhending fór fram 31. maí sl. og um leiđ var opnuđ sýning á ţessu einstaka minjasafni hjónanna sem ber heitiđ Úr ranni forfeđranna. Ţessi höfđinglega gjöf er mikill virđingarvottur viđ ársgamla sjálfseignarstofnun um Sjóminjasafn í Reykjavík.

Ţau Hinrik og Kolfinna söfnuđu um árabil ómetanlegum munum og minjum frá fyrri tímum. Afraksturinn er veglegt safn muna úr ranni forfeđranna sem ber međ sér sögu handverks og nytjahluta horfinna tíma. Safn ţeirra telur nćrri sjö hundruđ muni sem tengjast heimilum og störfum bćđi til sjávar og sveita. Heimilin voru međ svipuđu yfirbragđi og hlutir á ţeim hliđstćđir hvort sem fólk bjó viđ sjóinn á Stokkseyri eđa inn til landsins í Blöndudal. Sú horfna menning og ţađ samfélag sem sýningin Úr ranni forfeđranna gefur innsýn inn í og munirnar vitna um – gerir lítinn greinarmun á sveitabćndum og sjávarbćndum.

Hjónin koma frá sinn hvorum landsfjórđungnum, Hinrik er fćddur  ađ Ranakoti á Stokkseyri og Kolfinna ólst upp á Blöndudalshólum í Blöndudal. Ţau hafa bćđi unniđ viđ ađ miđla arfleifđ feđranna til landsmanna sem og viđ frćđslu barna og ungmenna gegnum tíđina.  Ţekkingu og frćđslu hafa ţau dýpkađ međ ţví ađ safna munum og minjum sem bera sögunni glöggt vitni.

Fra opn HinKil

Frá formlegri viđtöku á minjasafni Hinriks og Kolfinnu. Árni Ţór Sigurđsson, varaformađur stjórnar safnsins, í rćđupúlti.


Senda á Facebook

Viđburđatal