Á döfinni
18. október 2006
Samband íslenskra sjóminjasafna stofnađ
Stofnfundur Sambands íslenskra sjóminjasafna var haldinn í Sjóminjasafninu í Reykjavík 15. október s.l. ađ viđstöddum fulltrúum ţeirra safna sem undirrituđu lög og stofnskrá sambandsins. Söfnin sem standa ađ stofnuninni eru Byggđasafn Vestfjarđa, Síldarminjasafn Íslands, Sjóminjasafn Austurlands, Sjóminjasafniđ á Eyrarbakka, Byggđasafn Garđskaga, Víkin-Sjóminjasafniđ í Reykjavík,
Byggđasafniđ ađ Görđum, Byggđasafniđ á Hnjóti og vćnta má ţess ađ Sjóminjasafniđ á Húsavík gerist einnig ađili ađ sambandinu. Á fundinum kom fram ađ stofnun sambandsins er stórt skref sem ađstandendur vonast til ađ skili gifturíkum árangri. Margrét Hallgrímsdóttir, ţjóđminjavörđur, stjórnađi stofnfundinum og taldi stofnun sambandsins vera "afar farsćlt skref" viđ uppbyggingu sjóminjasafna á Íslandi. Kosin var stjórn nýja sambandsins og hana skipa Örlygur Kristfinnsson frá Síldarminjasafninu, sem jafnframt er formađur, Jón Sigurpálsson frá Byggđasafni Vestfjarđa og Ágúst Ó. Georgsson, sem tilnefndur er af hálfu Ţjóminjasafns Íslands. Helgi M. Sigurđsson frá Sjóminjasafninu í Reykjavík var kjörinn varamađur og varafulltrúi Ţjóđminjasafnsins er Lilja Árnadóttir.
Samband íslenskra sjóminjasafna mun hafa eftirtalin markmiđ: ađ skapa umrćđuvettvang um sjóminjar, ađ efla og skipuleggja varđveislu sjóminja, ađ koma á samstarfi um skráningu, ađ efla rannsóknir á sögu sjómennsku, siglinga og strandmenningar, ađ efna til samstarfs um sýningar, ađ stunda sameiginlega kynningu á sjóminjum Íslands og síđast en ekki síst ađ berjast fyrir stofnun bátafriđunarsjóđs.
Ađ stofnfundi loknum var opnuđ ljósmyndasýningin Í síldinni á Sigló, er ţar getur ađ líta myndir Hannesar Baldvinssonar, sem teknar voru á Siglufirđi á árunum 1958 til 1962. Ţetta eru bráđskemmtilegar svipmyndir úr mannlífinu og vinnu karla, kvenna og barna á síldarbryggjunum fyrir norđan. Sýningin er samstarfsverkefni Sjóminjasafnsins í Reykjavík, Síldarminjasafnsins og ljósmyndarans.





