Á döfinni
27. október 2006
Hollvinasamtök Óđins stofnuđ
Hollvinasamtök varđskipsins Óđins voru stofnuđ 26. október s.l. ađ viđstöddu fjölmenni í Víkinni – Sjóminjasafninu í Reykjavík. Björgun Óđni, sögunnar vegna eru einkunnarorđ ţessara nýju samtaka, sem stofnuđ voru ađ frumkvćđi Sjómannadagsráđs eftir tillögu Guđmundar Hallvarđssonar, ţingmanns og formanns ráđsins. Markmiđ samtakanna er ađ gera varđskipiđ Óđinn ađ sögusafni ţorskastríđsáranna og björgunarsögu íslenskra varđskipa og ađ skipiđ verđi fćrt Sjóminjasafninu og ţví komiđ fyrir í höfninni framan viđ safniđ.
Fullt var út úr dyrum á stofnfundi samtakanna og ţar fluttu ávörp hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Björn Bjarnason dómsmálaráđherra, Vilhjálmur Ţ. Vilhjálmsson borgarstjóri og Stefán Jón Hafstein, stjórnarformađur Víkurinnar. Í rćđum ţeirra kom vel fram ađ nú vćri ekki ađeins fágćtt tćkifćri til ađ varđveita varđskipiđ Óđinn og gera ţađ ađ safni ţorskastríđsáranna og björgunarsögu varđskipanna, heldur bćri Íslendingum beinlínis skylda til ađ tryggja varđveislu skipsins og halda á lofti ţeirri merkru sögu sem skipiđ stendur fyrir.
Varđskipiđ Óđinn er eina skip Landhelgisgćslunnar í dag sem tók ţátt í öllum ţremur
ţorskastríđunum á síđustu öld, ţegar fiskveiđilögsagan var fćrđ út í 12 mílur, 50 mílur og síđast 200 mílur. Skipiđ er ađ mestu óbreytt frá ţví ţađ var smíđađ áriđ 1959 og er taliđ ađ ađalvélar skipsins séu einu Burgmeister&Wain skipavélarnar í heiminum sem enn eru gangfćrar.
Í 2. gr. laga um Hollvinasamtök varđskipsins Óđins sem samţykkt voru á fundinum segir:
Markmiđ samtakanna er
a) ađ varđveita varđskipiđ Óđinn, ađra muni og minjar sem tengjast sögu ţorskastríđsárann
a milli Íslendinga og Breta
b) ađ ná til sem flestra muna, mynda og annarra minja er stuđla ađ sem mestum fróđleik og stađreyndum, sögu og sagna ţorskastríđsáranna
c) ađ varđveita sögu Óđsins sem varđskips viđ löggćslu, björgun sćfarenda og skipa viđ Ísland
d) ađ vinna ađ ţví ađ fast fjárframlag fáist á ári hverju til reksturs og viđhalds skips, muna og minja
e) ađ Víkin Sjóminjasafniđ í Reykjavík, yfirtaki Óđinn, muni og minjar ţorskastríđsáranna og tengi viđ starfsemi sína.
Stjórn samtakanna verđur skipuđ 8 mönnum og eiga eftirtalin félög, samtök og fyrirtćki fulltrúa í stjórn: Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Félag vélstjóra og málmtćknimanna, Fjöltćkniskóli Íslands, Öldungaráđ LHG, Sjómannadagsráđ Reykjavíkur, Sjómannasamband Íslands, Slysavarnarfélagiđ Landsbjörg og Víkin Sjóminjasafniđ í Reykjavík.







