Á döfinni
14. desember 2006
Mikilvćgur stuđningur ríkisstjórnar viđ uppbyggingu Sjóminjasafnsins
Ţorgerđur Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráđherra, og Einar K. Guđfinnsson, sjávarútvegsráđherra, undirrituđu 14. desember 2006 samkomulag viđ Víkina – Sjóminjasafniđ í Reykjavík um fjárhagslegan stuđning viđ uppbyggingu safnsins á nćstu ţremur árum. Samtals nemur styrkurinn 30 milljónum króna og fćr safniđ 10 milljónir árlega nćstu ţrjú árin, frá 2007 – 2009.
Ţessi stuđningur er afar mikilvćgur ungri sjálfseignarstofnun sem Víkin – Sjóminjasafniđ í Reykjavík er. Sjóminjasafniđ fagnađi ţví 30. nóvember s.l. ađ tvö ár voru ţá liđin frá ţví ađ safniđ var formlega stofnađ. Starfsemi safnsins hófst í ársbyrjun 2005 og fyrsta sýningin var opnuđ á Hátíđ hafsins í byrjun júní sama ár. Safniđ er starfrćkt í fyrrum frystihúsi Bćjarútgerđar Reykjavíkur viđ Grandagarđ og hefur ţađ veriđ eitt helsta verkefniđ ađ breyta ţessu gamla frystihúsi í safnhús, sem er kostnađarsamt eins og gefur ađ skilja. Međ góđum stuđningi Faxaflóahafna, sem er eigandi húsnćđisins, og nú ríkisstjórnar Íslands eru ţćr umbreytingar ađ komast á lokastig og verđur lokiđ viđ ađ klćđa húsiđ og koma ţví í fulla notkun á nćsta ári, 2007. Auk tveggja fyrrgreindra stuđningsađila styđja rekstur safnsins annars vegar Reykjavíkurborg og hins vegar bakhjarlar safnins; Eimskip, Glitnir og HB Grandi.

Sigrún Magnúsdóttir, forstöđurmađur, Stefán Jón Hafstein, formađur stjórnar safnsins, Einar K. Guđfinnsson sjávarútvegsráđherra og Ţorgerđur Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráđherra undirrituđu samkomulagiđ í lúkar safnsins úr gömlu síđutogurunum.






