Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

10. desember 2007

Máttarstólpar safnins endurnýja styrktarsamninga

Máttarstólpar Sjóminjasafnsins, Eimskip, Glitnir og HB Grandi, hafa undirritađ nýja samninga um áframhaldandi stuđning viđ rekstur og uppbyggingu safnsins. Sjóminjasafniđ fagnađi um síđustu mánađamót ţriggja ára afmćli sínu. Máttarstólparnir hafa stutt viđ safniđ frá upphafi og međ nýjum samningum er handsalađur samningur um rekstrarstuđning til nćstu ţriggja ára. Stuđningur máttarstólpanna er, eins og gefur ađ skilja, afar mikilvćgur í uppbyggingu Sjóminja­safnsins, sem hefur vaxiđ verulega fiskur um hrygg síđustu ţrjú árin og er framtíđ safnsins björt á ţessum tímamótum.

Undirritun stor

Árni Vilhjálmsson, stjórnarformađur HB Granda, Vala Pálsdóttir fulltrúi Glitnis, Vilhjálmur Ţ. Vilhjálmsson stjórnarformađur Sjóminjasafnsins og Guđmundur Davíđsson, forstjóri Eimskips á Íslandi, handsöluđu samningana í Bryggjusal safnsins.

Óhćtt er ađ segja ađ fortíđ máttarstólpanna tengist mjög ţeirri sögu sem Sjóminja­safninu í Reykjavík er ćtlađ ađ varđveita og miđla til landsmanna og erlendra gesta. Ţannig eru rćtur fyrirtćkjanna ţriggja sýnilegar í núverandi sýningum safnsins; Togarar í hundrađ ár og Lífćđ lands og borgar – Reykjavíkurhöfn 90 ára. Gullfoss, fyrsta millilandskip Íslendinga sem hingađ kom 1915, er stór hluti af sýningu um sögu hafnarinnar, enda var gerđ Reykjavíkurhafnar, stofnun Eimskips og togaravćđingin í raun tákngerving „flugtaks” Íslands úr fátćkt fyrri alda yfir í tćknivćtt ríkidćmi nútíma samfélags. Í árdaga togaraútgerđar var ţáttur Íslandsbanka, forvera Glitnis, afar mikilvćgur viđ uppbyggingu veiđiflotans og enn í dag er ţjónusta viđ íslenskan sjávarútveg stór ţáttur í starfsemi bankans. Tenging útgerđarfyrirtćkisins HB Granda viđ Sjóminjasafniđ er augljós og ţar ađ auki er safniđ starfrćkt í fyrrum húsnćđi Bćjarútgerđar Reykjavíkur sem sameinađist HB Granda áriđ 1984. Sögu BÚR eru gerđ skil í togarasýningunni.

Vilhj og Guđm

Guđmundur Davíđsson, forstjóri Eimskips á Íslandi, segir fyrirtćkiđ vera stoltan bakhjarl Sjóminjasafnsins í Reykjavík, enda sé saga Eimskips samofin sögu siglinga ţjóđarinnar frá 1914. “Viđ erum mjög stolt af rótum félagsins og leggjum áherslu á ađ hlúa vel ađ upprunanum. Ţađ er einstaklega ánćgjulegt ađ sjá hversu vel er haldiđ utan um söguna hér Sjóminjasafninu og hér má međal annars finna marga af sögufrćgum gripum úr sögu Eimskips.”

 


Senda á Facebook

Viđburđatal