Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

3. júní 2008

Varđskipiđ Óđinn og Magni viđ safnbryggjuna

Varđskipiđ Óđinn hefur nú fengiđ nýtt hlutverk sem lifandi safn um ţorskastríđin og björgunarsögu Landhelgisgćslunnar. Skipiđ liggur viđ sérstaka bryggju sem nú mun tilheyra Sjóminjasafninu og verđa hluti ţess. Einnig hefur dráttar- og lóđsbáturinn Magni veriđ afhentur safninu til varđveislu og liggur hann einnig viđ safnbryggjuna.

Óđinn međ Magna

Árni M. Mathiesen fjármálaráđherra afhenti Hollvinasamtökum Óđins varđskipiđ viđ hátíđlega athöfn 30. maí sl., sem haldin var um borđ í skipinu. Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráđherra, sem jafnframt er ćđsti yfirmađur Landhelgisgćslunnar, flutti ávarp viđ athöfnina. Guđmundur Hallvarđsson, formađur hollvinasamtakanna og einnig sjómannadagsráđs, tók viđ skipinu fyrir hönd samtakanna. Óđinn afhentur

Daginn eftir, viđ enduropnun Sjóminjasafnsins, afhenti Guđmundur síđan Vilhjálmi Ţ. Vilhjálmssyni, stjórnarformanni safnsins, og Sigrúnu Magnúsdóttur, forstöđumanni Sjóminjasafnsins, skipiđ til varđveislu viđ sérstaka bryggju Sjóminjasafnsins sem Faxaflóahafnir hafa í vetur gert upp og styrkt til ađ taka viđ Óđni.

Hollvinasamtök varđskipsins Óđins voru stofnuđ 26. október 2006 ađ viđstöddu fjölmenni í Víkinni – Sjóminjasafninu í Reykjavík. Björgun Óđni, sögunnar vegna eru einkunnarorđ samtakanna, sem stofnuđ voru ađ frumkvćđi Sjómannadagsráđs eftir tillögu Guđmundar Hallvarđssonar, formanns ráđsins.

Magni afhentur

Ţá afhenti Júlíus Vífill Ingvarsson, formađur stjórnar Faxaflóahafna, gamla Magna til Sjóminjasafnsins ţar sem hann verđur viđ safnabryggjuna í vörslu safnsins.  Ţađ var Vilhjálmur Ţ. Vilhjálmsson, formađur stjórnar Sjóminjasafnsins, sem tók viđ Magna. 

 

 

 

óđinn siglir ađ

Varđskipiđ var flutt yfir til Sjóminjasafnsins 28. febrúar sl., í hríđarbyl, en eftir ađ skipiđ lagđist ađ bryggju stytti upp.


Senda á Facebook

Viđburđatal