Á döfinni
9. október 2008
Höfđingleg gjöf til safnsins
Sjóminjasafninu barst á dögunum höfđingleg gjöf frá einum af velunnurum safnsins, Ásgeiri Long. Um er ađ rćđa einstaka völundarsmíđ Ásgeirs, sem er nákvćmt módel af gufuvél úr nýsköpunartogaranum Júlí GK frá Hafnarfirđi, en Ásgeir sigldi á sínum tíma međ Júlí og vann í vélarrúminu. Mikil vinna liggur á bak viđ gerđ slíks módels og er ekki fráleitt ađ ćtla ađ greiđa ţyrfti um eina milljón króna fyrir vinnuna viđ gerđ ţess. Gjöfin er ţví sannarlega höfđingleg, en áđur hafđi Ásgeir m.a. gefiđ safninu kvikmynd sem hann gerđi úr upptökum hans úr veiđiferđ međ Júlí áriđ 1950 og var myndin sýnd í safninu á sýningunni Togarar í 100 ár. Gufuvélin verđur sett upp til sýningar innan skamms, auk ljósmynda Ásgeirs sem hann tók um borđ í Júlí áriđ 1950.

Vilhjálmur Ţ. Vilhjálmsson, stjórnarformađur safnsins, Ásgeir Long og Sigrún Magnúsdóttir, forstöđumađur safnsins, viđ afhendingu hinnar höfđinglegu gjafar Ásgeirs. Módeliđ má sjá á borđinu fyrir framan ţau.





