Á döfinni
19. janúar 2009
Ný sýning: Óskabarn ţjóđarinnar
Hinn 17. janúar sl. var opnuđ sýning í Sjóminjasafninu í tilefni af 95 ára afmćli Eimskipafélags Íslands. Jafnframt var haldiđ upp á afmćli félagsins í safninu og var m.a. öllum starfsmönnum bođiđ í hóf í safninu. Sýningin er sett upp í samvinnu viđ félagiđ og eru á sýningunni ýmsir munir úr sögu Eimskipafélagsins, skipalíkön og myndir. Á sýningunni má jafnframt sjá hin ţekktu dagatöl Eimskipafélagsins, sem félagiđ hefur gefiđ út í rúm 80 ár, nánast samfellt. Dagatölin eru leiđarstef í sýningunni og á hverju dagatali er texti ţar sem getiđ er ţess helsta sem var á döfinni hjá Eimskipafélaginu á hverju ári, auk helstu tíđinda úr sögu lands og ţjóđar. Margar glćsilegar ljósmyndir og teikningar prýđa dagatöloin, en auk ţess má lesa úr ţeim ţróun í hönnun og prenttćkni frá 1929 til 2007.






