Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

18. febrúar 2009

Frábćr safnanótt

Safnanótt heppnaðist með eindæmum vel og vill Víkin - Sjóminjasafnið þakka öllum þeim sem lögðu leið sína á safnið fyrir komuna. Aðsókn var gríðarlega góð en um 900 manns heimsóttu safnið. Veðrið var mjög gott og fjölbreytt dagskrá höfðaði til allra aldurshópa.

Ţemað í ár var draugar og sjóræningjar og var því hægt að rekast á nokkra slíka hér á svæðinu.

sjóræninginn

 Varðskipið Óðinn var opið og fyrrum landhelgisgæslumenn leiðbeindu fólki um skipið og svöruðu spurningum.
Eitthvað urðu gestir varir við draugagang um borð en það voru nú einungis vinalegir draugar.

Draugar í Óðni

Víkin - Sjóminjasafnið vill þakka öllum þeim sem komu að gerð dagskráarinnar.

Svabbi sjóari

Sérstaklega vakti Svabbi sjóari úr Stundinni okkar athygli barnanna með sprelli sínu og ýkjusögum af sjónum.

safnanótt

anddyri safnsins

Bryggjufjör

Bryggjufjör

Bryggjufjör

Bryggjufjör


 


Senda á Facebook

Viđburđatal