Á döfinni
26. mars 2009
Spegill fortíđar - silfur framtíđar
Næsta og síðasta fræðslukvöld Vitafélags Íslands í samvinnu við Sjóminjasafnið verður haldið í húsakynnum safnsins að Grandagarði 8 þann 2. apríl n.k., og hefst kl. 20.00. Umfjöllunarefni kvöldsins eru annars vegar auður Austfjarða og hins vegar náttúru- og veðurþekkinga Íslendinga fyrr og nú. Fyrirlestrana flytja þeir Hjörleifur Guttormsson og Eiríkur Valdimarsson.
Auður Austfjarða og "Gaggi að kveldi tófa, garpar að morgni róa!" Náttúru- og veðurþekking Íslendingar fyrr og nú.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um alþýðulegar veðurspár Íslendinga við sjávarsíðuna og að auki um hina nýju söfnun alþýðlegra veðurspáa sem Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur stjórnar. Einkum verður horft til veðurspáa við sjávarsíðuna, þar sem sjófólk þurfti að kunna skil á umhverfinu áður en haldið var til hafs. Eiríkur mun leita til svara sem bárust þjóðháttasafni Þjóðminjasafnsins við spurningaskrá um verðurspár árið 1975 og koma með nokkur áhugaverð dæmi úr ýmsum áttum
Eiríkur er BA í þjóðfræði frá 2006 og skrifar nú MA ritgerð í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Auður Austfjarða
Hjörleif Guttormsson, náttúrufræðing og fyrrum alþingismann og ráðherra, þarft vart að kynna. Að þessu sinni fræðir hann okkur í myndum og máli um strandminjar og menningarauð Austfjarða.





