Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

15. apríl 2009

Ferđafagnađur 18. apríl

Sjóminjasafnið í Reykjavík býður gesti og gangandi velkomna í safnið á Ferðafagnað 2009, laugardaginn 18. apríl. Staðsetning safnsins er einstök við gömlu höfnina og húsið tilheyrir stórum þætti útgerðarsögu borgarinnar. Sýningar safnsins segja frá þróun fiskveiða og strandmenningar landsmanna í gegnum aldirnar. Við sérstaka safnbryggju liggur fyrrum varðskipið Óðinn og er þar sögð saga þorskastríðanna og björgunarsaga Landhelgisgæslunnar.

Dagskrá safnsins

kl. 13:00 Safnið og varðskipið opna.

kl. 13.30 Leiðsögn um sýningarnar Frá örbirgð til allsnægta og Hákarlinn - ljós og lífsorka. Gestir fá gefins hákarlalýsi til að auka lífsorkuna.

kl. 14.00 Ólafur Valur Sigurðsson, fyrrum skipherra á Óðni, stendur í brúnni í fullum skrúða og segir frá lífinu um borð.

kl. 15.00 Leiðsögn um sýningarnar Óskabarn þjóðarinnar - Eimskipafélagið 95 ára og Lífæð lands og borgar - Reykjavíkurhöfn 90 ára.

Ókeypis aðganur er að safninu þennan dag.

midsalur stor


Senda á Facebook

Viđburđatal