Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

10. júní 2009

Hátíđ hafsins

Hátíð hafsins fór fram helgina 6.-7. júní og heppnaðist með eindæmum vel. Borgarbúar voru duglegir að mæta hingað á Grandann til að taka þátt í hátíðarhöldunum og fjölbreytt dagskrá skemmti allri fjölskyldunni.

hh-odinnn-stor

Víkin-Sjóminjasafnið var einstaklega vel sótt en um 6000 gestir heimsóttu safn og skip. Nýjar sýningar og safnkaffi voru opnuð innanhúss. Safnkaffið var með ljúffengar kökur og smurt brauð til sölu sem vakti mikla lukku, enda fátt betra að fá sér kökusneið og fylgjast með fuglalífinu á blágrænum sjónum.
Varðskipið Óðinn var einnig opinn og tóku fyrrverandi áhafnarmeðlimir vel á móti fólki.

Við þökkum gestum safnsins fyrir frábæra helgi og góðar viðtökur á nýjum sýningum okkar og sér í lagi kaffihúsinu.

hh-eirikur-litil

Eiríkur forstöðumaður býður gesti velkomna 

hh-odinsmenn-litil 

Tryggva og Birgi þakkað fyrir alla hjálpina í vetur í Óðni

hh-k.h.opnun-litil

Gísli hafnarstjóri og Vilhjálmur stjórnarformaður opna kaffihúsið formlega með aðstoð Sigrúnar

hh-fyrst gestir-litil

Fyrstu gestir kaffihússins

hh-fol-litil

Gestir að kvitta fyrir komuna

hh-kaffi a svolum-litil

Verið að njóta sólarinnar á svölum safnsins

hh-skvisur-litil

Ungar dömur sem höfðu það gott á safnkaffinu

hh-butasaumur-litil

Sýning bútasaumskvenna


Senda á Facebook

Viđburđatal