Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

18. júní 2009

Nýjar sýningar

Á Hátíð hafsins voru opnaðar þrjár nýjar sýningar. Það eru sýningarnar Saga seglanna, Hafnarfjarðarhöfn í 100 ár sem er farandsýning í nýjasta sal safnsins og sýning frá félagi íslenskra bútasaumskvenna Hafið.

 

seglasyning stor

Saga seglanna er skemmtileg sýning sem sýnir með hvaða hætti Íslendingar bjuggu til segl áður fyrr. Þar gefur á að líta hin ýmsu verkfæri sem voru nýtt, stærðar seglasaumavél og líkön af árabátum og skipum undir fullum seglum. Einnig má sjá þar árabátinn Farsæl sem var smíðaður í Vestmannaeyjum rétt eftir aldamótin 1900.

 

farsaell 
Árabáturinn Farsæll

Hafnarfjarðarhöfn í 100 ár er ljósmyndasýning frá Byggðasafni Hafnarfjarðar. Eru þetta áhugaverðar og skemmtilegar mann- og bæjarlífsmyndir. Sýningin er í nýjasta sal safnsins, sem er inn af safnkaffinu.

 

hfj 100 ara

 

Hafið er litrík sumarsýning á vegum Íslenska bútasaumsfélagsins. Þemað passar einstaklega vel í umhverfi safnsins og gefur því skemmtilegan svip. Í þessum flotta hópi veggteppa eru meðal annars vinningsteppin þrjú.

 

butasaumur nr.1 
Myndin sem hlaut 1. sæti

 

butasaumur-litil 
Teppið sem hlaut 2. sæti

 

butasaumur nr 3 
Teppið sem var í 3. sæti


Senda á Facebook

Viđburđatal