Á döfinni
5. ágúst 2009
Ţjóđlegt Safnkaffi fćr góđar móttökur
Nýtt Safnkaffi var opnað í Víkinni í sumarbyrjun og hefur það fengið afar jákvæðar viðtökur. Enda býður Safnkaffið upp á frábærar heimatilbúnar veitingar og einstakt útsýni yfir gömlu höfnina! Í veitingunum er lögð megin áhersla á þjóðlega rétti sem gerðir eru á staðnum úr úrvals hráefnum. Má þar m.a. nefna heimabakað rúgbrauð með bragðmiklu hangikjöti, sem ekki er skorið við nögl ofan á brauðið. Ætlunin er að kaffihúsinu vaxi fiskur um hrygg á næstu vikum og mánuðum og innan skamms verður boðið upp á heimalagaðar íslenskar súpur í hádeginu og annað fiskmeti eins og saltfiskbollur. Kaffihúsið er opið alla daga frá 11 til 17 og er ekki eingöngu ætlað safngestum. Allir geta heimsótt Safnkaffið sérstaklega hvenær sem er og notið þjóðlegra veitinga og hins stórkostlega útsýnis yfir höfnina, annað hvort innandyra eða utandyra í góðu veðri á útsýnispalli safnsins!
Ţað er notalegt andrúmsloft og einstakt útsýni yfir höfnina í Safnkaffinu.
Í góðu veðri er frábært að setjast niður á útsýnispallinum með kaffibolla.
Girnilegar veitingar og góð þjónusta.





