Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

20. ágúst 2009

Menningarnótt 2009

Víkin býður gesti velkomna á safnið á Menningarnótt. Að venju verður mikið í gangi á safninu og í tilefni dagsins er frítt inn. Gestir geta gengið um og skoðað hinar fjölbreyttu sýningar sem safnið hefur uppá að bjóða. Safnkaffið mun hafa ljúffengar veitingar til sölu og verður hægt að njóta þeirra við eitt besta útsýnið í Reykjavík. Varðkipið Óðinn verður opið og aldrei að vita nema að hægt verði að finna einhverja af fyrrverandi áhafnarmeðlimum skipsins um borð. Þegar kvölda tekur verður slegið upp dansleik á safninu og mun Harmonikkufélag Reykjavíkur leika fjöruga tónlist.

Sjá nánari dagskrá hér fyrir neðan:

 

profile-stor

 

Dagskrá:

kl. 11:00 - Safnið og Safnkaffið opna - frítt inn og bragðgóðar veitingar til sölu

kl. 11:00-17:00 - Bútasaumskonur verða á staðnum að kynna sýningu sína Hafið

kl. 13:00-17:00 - Varðskipið Óðinn opinn, gestum frjálst að ganga um skipið og skoða vistaverur áhafnarmeðlima

kl. 20:00-21:30 - Harmonikkuball Harmonikkufélags Reykjavíkur, 10 spilarar mæta á safnið og skemmta gestum með hressandi harmonikkutónlist


Senda á Facebook

Viđburđatal