Á döfinni
30. september 2009
Ný sýning
Í gær, 29. september, var opnuð ný sýning á safninu sem kallast Snemma beygist krókurinn. Er þetta yfirlitsýning á verkum Bjarna Jónssonar listmálara. Sýningin var sett upp í tilefni af því að Bjarni hefði orðið 75 ára 15. september s.l.
Á sýningunni, sem er í salnum Betri stofan, er úrval mynda sem sýna feril Bjarna sem listmálara og eru nokkur verkanna til sölu.
Víkin-Sjóminjasafnið mun af þessu tilefni einnig sýna þjóðháttamyndir Bjarna í nýjum sal safnsins Verbúðinni, en hann hafði óþrjótandi áhuga á sjávarháttum Íslendinga á fyrri tímum.





