Á döfinni
9. október 2009
Björgum vs Óđni
Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir algerri niðurfellingu á framlagi til Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins, en það var 5 mkr. Það framlag hefur verið bráðnauðsynlegt til viðhalds og reksturs vs Óðins sem safns og hefur reyndar engan veginn dugað. Ljóst var strax í upphafi að framlagið þyrfti að vera 12 mkr., en Víkin-Sjóminjasafnið í Reykjavík og ósérplægnir sjálfboðaliðar hafa bætt upp það sem á hefur vantað.
Sú ákvörðun að gera varðskipið Óðin að safnskipi árið 2008 og leggja honum fyrir framan Víkina-Sjóminjasafnið í Reykjavík hefur sannað sig rækilega. Hann er hlaðinn sögu um fjölbreytilega starfsemi ekki síst frá tímum þorskastríðanna þriggja þegar hann lenti í tíðum átökum við breska flotann. Á friðartímum bjargaði hann alls um 200 skipum úr strandi eða frá eyðileggingu af völdum eldsvoða.
Þessi saga má ekki falla í gleymsku, einkum sú sem snýr að baráttunni fyrir fengsælum fiskimiðum við landið. Hún höfðar einnig greinilega til stórs hóps fólks, íslenskra skólabarna jafnt sem erlendra ferðamanna. Við skorum því á stjórnvöld að endurskoða fjárlagafrumvarpið, leggja lágmarks framlag til vs Óðins og koma þannig í veg fyrir að skipinu verði lokað almenningi, það látið eyðileggjast og sú margháttað uppbygging sem átt hefur sér stað fari í súginn.
Óðinn að koma til landsins 1960
Víkin-Sjóminjasafnið er komið með síðu á facebook til stuðnings vs Óðni, hægt er að skrá sig hér: http://www.facebook.com/home.php?#/group.php?gid=151768272417





