Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

2. nóvember 2009

Opinn borgarafundur og íslenska vitafélagiđ

Fimmtudaginn 5. nóvember verður nóg um að vera á safninu því hér verða haldnir tveir fundir. Sá fyrri er Opinn fundur um Grímsstaðavör og sá seinni er fyrsti fundur vetrarins hjá íslenska vitafélaginu.

utandyra-stor

Opni fundurinn um Grímsstaðavör hefst kl. 17:00 og er þetta samráðsfundur um varðveislu grásleppuskúranna og annarra minja í Grímsstaðavör við Ægisíðu. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi og formaður starfshóps um Grímsstaðavör gerir grein fyrir framvindu verkefnisins. Tillaga að skipulagi svæðisins verður kynnt. Síðan verður tekið við ábendingum og athugasemdum. Vesturbæingar og aðrir sem hafa áhuga á varðveislu Grímsstaðavarar, eru hvattir til að sækja fundinn og taka þátt í umræðum um verkefnið.

Fundur íslenska vitafélagsins hefst síðan kl. 20:00. Fyrirlesara kvöldsins verða tveir, Agnar Jónsson með fyrirlesturinn Á sjó eða brennur og Þorsteinn Pétursson með Stolt siglir fleyið mitt.


Senda á Facebook

Viđburđatal