Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

25. nóvember 2009

Spegill fortíđar - silfur framtíđar

Í vetur mun íslenska vitafélagið,  félag um íslenska strandmenningu, halda fræðslukvöld sín hér á safninu. Fundirnir verða haldnir 1. fimmtudag hvers mánaðar fram að apríl.
Ţann 3. desember verður annar fundur félagsins haldinn og eru fyrirlesarar kvöldsins Sonja Sif Jóhannesdóttir og Hlíf Gylfadóttir. Fundurinn hefst kl. 20:00 og er opinn öllum.

                                             bjarni-madur-batur-litil

Sonja Sif Jóhannesdóttir mun flytja fyrirlesturinn Almættið og Íslands Hranfistumenn - Heilsufar sjómanna. Eru hetjur hafsins óbugandi og hraustari en aðrir? Eða hefur vetrarmyrkur, einsemd og einhæft starf áhrif á þá eins og aðra. Í erindi sínu gerir Sonja grein fyrir rannsókn sinni á heilsufari og líkamsástandi sjómanna fyrir og eftir 6 mánaða íhlutunartímabil. Íhlutunin fólst í því að auka hreyfingu og bæta mataræði sjómannanna, bæði á sjó og í landi. Sonja er meistari í íþrótta- og heilsufræðum frá læknadeild Háskóla Íslands og íþróttaskor KHÍ.

Hlíf Gylfadóttir, mannfræðingur og kennari, mun flytja fyrirlesturinn Sjóarinn og almættið. Þar segir hún frá sjómönnum sem voru í burtu frá fjölskyldum og ástvinum á jólum vegna sjósókna, hvernig aðbúnaður sjómanna var um borð á jólum og hvernig hann hefur breyst. Einnig segir hún frá siðum sem sjómenn stunduðu til að treysta á velvild æðri máttarvalda við sjósóknina. Að lokum segir hún sögu af jólum tengdri Landhelgisgæslunni þar sem ferð til hafnar að halda jólin á aðfangadag með fjölskyldum breyttist í björgunarleiðangur vegna vísbendingar að handan sem varð til þess að tveimur skipum var bjargað úr sjávarháska.


Senda á Facebook

Viđburđatal