Á döfinni
1. desember 2009
Harmonikuball viđ hafiđ
Harmonikufélag Reyjavíkur og Víkin-Sjóminjasafnið efna til hátíðar á öðrum sunnudegi í aðventu þann 6. desember, sem er Nikulásarmessa. Gunnar Þorláksson stjórnar marseringu og hringdansi að hætti fyrri tíma milli kl. 15:00-17:00.
Ţá verður gamaldags jólaföstukaffibrauð til sölu á Safnkaffinu ásamt súkkulaði og kaffi.
Aðgangseyrir að safni og harmonikuballinu verður aðeins 500 kr. þennan dag og frítt inn fyrir 12 ára og yngri.

Nikulásarmessa:
Heilagur Nikulás biskup í Mýru var snemma einn af vinsælustu dýrlingum hérlendis. Á dögum Þorláks biskups seint á 12. öld er lögleidd náttfasta fyrir Nikulásarmessu. Vinsældir hans hérlendis eru vafalaust að hann var meðal annars alþjóðlegur verndari sæfara.

Erlendis var Nikulás fyrirmynd alþjóðlega jólasveinsins, Santa Claus. Íslenskir jólasveinarnir tóku upp búnað og sumt í atferli Nikulásar kringum 1930 þótt þeir héldu eigin nöfnum.
Víða um Evrópu er 6. desember enn sérstakur hátíðsdagur og góð börn og iðin fá smákökur og smágjafir frá Nikulási, en dagurinn er dánadægur hans.
Aldrei er vitað að Nikulás hafi sjálfur fært börnum gjafir á Íslandi en á honum var samt átrúnaður. Ekki eru til skýrar heimildir um orsakir hinnar tiltölulegu miklu dýrkunar Nikulásar á Íslandi. Nærtækast er þó að álykta að eyþjóðin, Ísland, hafi mörgum fremur þóst þurfa að heita á þennan verndara sæfara.
Matthías Jochumsson var prestur í Odda. Hann lét reisa kirkjuna þar 1884. Þegar smíðin var langt komin reyndist viðurinn ónógur sem pantaður hafði verið. Meðhjálpari Hallur í Hól taldi nú að biskup Nikulás mundi ekki gleyma turninum. Frá dögum Sæmundar fróða hefði aldrei brugðist að nægur reki bærist kirkjunni þegar mikið hefði legið á. Hann reyndist sannspár. Næsta dag rak tré á Oddafjöru, 26 álna langt og hálf alin á hverja hlið, og dugði í turninn.





