Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

2. desember 2009

5 ára afmćli safnsins

Ţann 30. nóvember síðastliðinn var því fagnað að liðin eru fimm ár frá formlegri stofnun safnsins. Af þessu tilefni var opnuð ný sýning, Minjar segja sögu. Þar er sýnt úrval muna og mynda úr geymslum safnsins. Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á það mikilvæga innra starf safnsins sem felst í skráningu, rannsóknum og varðveislu minja og mynda.

geysmal-munir-litil

Í vörslu Víkurinnar eru nú um 4000 safngripir og er þessari sýningu ætlað að veita gestum innsýn í samsetningu og umfang þeirra. 90% þessara muna eru í eigu safnsins, um 10% eru eign Minjasafns Reykjavíkur. Þessi safnkostur telst nokkuð ríflegur fyrir ungt safn og þó er ljóst að streymi gripa til safnsins verður einnig mikið næstu árin.

geymsla-munir-stor

Enginn gripur hefur verið keyptur enn sem komið er og hefur því fjöldi manns sýnt safninu mikið örlæti með því að gefa því verðmæta muni. Þeim er þakkað hér með.

Ţegar Víkin var stofnuð 2004, álitu margir að of seint hafi verið farið af stað með söfnun sjóminja í borginni. Rétt er að miklu hefur verið fleygt sem erfitt verður eða ókleift að bæta. En í ljós hefur komið að meira hefur verið varðveitt en margur taldi, bæði hjá einstaklingum, stofnunum og fyrirtækjum.

geymsla-hofrungur-litil

Einnig nýtur safnið þess að bæði Minjasafn Reykjavíkur og Þjóðminjasafnið hafa tekið við sjóminjum í gegnum tíðina í nokkrum mæli.

Ásamt gripunum hefur Víkinni borist allmikill fjöldi mynda af ýmsu tagi og eru sýnishorn af þeim sömuleiðis hér á sýningunni.

geymsla-myndir-litil

geymsla-bord-litil
Kræsingar sem voru á boðstólum fyrir veislugesti

geymsla-dbh-litil
Gestir á opnuninni

geymsla-hardfiskur-litil
Verið að gæða sér á harðfisk

geymsla-hillur-litil
Af sýningunni

geymsla-folk-litil
Gestir á sýningaropnun

geymsla-stigi-litil

Senda á Facebook

Viđburđatal