Á döfinni
14. desember 2009
Hugmyndasamkeppni
Ţann 11. desember síðast liðinn opnaði sýning á tillögum sem voru sendar í Hugmyndasamkeppni fyrir Gömlu höfnina og Örfirisey í Reykjavík. Meginmarkmið samkeppninnar var að fá fram frjóar og fjölbreyttar hugmyndir um framtíðarnýtingu og framtíðarskipulag Gömlu hafnarinnar. Að undanskildu aðalskipulagi hefur aldrei verið gert heildarskipulag af þessu svæði þrátt fyrir mikilvægi þess í heildarmynd Reykjavíkur. Með samkeppninni gafst einstakt tækifæri til að skapa í miðborg Reykjavíkur svæði glætt lífi sem tengist höfninni, hafnarstarfsemi og sögu hennar en er um leið mikilvægur hluti miðbæjarins og þess fjölbreytta mannlífs sem þar er með menningarstofnunum, verslunum, þjónustu og íbúarbyggð.
Vandfundin eru dæmi þess í endurskipulögðum erlendum hafnarborgum að hafnir haldi óbreyttri starfsemi að endurskipulagningu lokinni. Ætlunin með þessari samkeppni var ekki eingöngu að tryggja að líf yrði áfram í og við höfnina heldur að þannig yrði búið um framtíðarskipulag að það efldist um ókomin ár. Umsvif á svæðinu skyldu tengjast útgerð og hafnarstarfsemi en einnig annarri starfsemi, svo sem ferðamannaþjónustu.
Vonir verkkaupa stóðu til þess að verðlaunaðar hugmyndir gætu nýst í framhaldsvinnu við gerð heildarskipulags fyrir svæðið. Þetta á bæði við um aðalskipulag og deiliskipulag svæðisins.
Samkeppnin var almenn hugmyndasamkeppni og öllum opin. Hún var tvískipt:
A-hluti: var ætlaður fagaðilum og þeim sem uppfylltu skilyrði verkkaupa um þátttöku. Hann fór fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og samkvæmt samkeppnisreglum félagsins.
B-hluti: var öllum opinn án nokkurra skilyrða. Þar einskorðaðist þáttur Arkitektafélags Ísland við tilnefningu í dómnefnd.
Dómarar voru eftirfarandi:
Dómnefndarfulltrúar tilnefndir af verkkaupa:
Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður dómnefndar, borgarfulltrúi, formaður skipulagsráðs og stjórnar Faxaflóahafna sf.
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi, í stjórn Faxaflóahafna sf.
Lena Helgadóttir, arkitekt FAÍ
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna sf.
Dómnefndarfulltrúar tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands:
Ţorvaldur S. Þorvaldsson, arkitekt FAÍ
Valdís Bjarnadóttir, arkitekt FAÍ
Harpa Stefánsdóttir, arkitekt FAÍ
Ritari dómnefndar var Ásdís Ingþórsdóttir, arkitekt FAÍ
Sýningin verður opin til 1. janúar og er í Verbúðinni





