Á döfinni
4. janúar 2010
Íslenska vitafélagiđ
Íslenska vitafélagið fundar í 3. sinn á safninu fimmtudaginn 7. janúar kl. 20:00. Fyrirlesarar kvöldsins eru tveir, Anna Ólafsdóttir Björnsson og Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir.
Anna flytur fyrirlesturinn Spor á ströndu. Að varðveita söguna við sjóinn. Þar fjallar hún um nokkra þætti sem hafa áhrif á varðveislu sögustaða og söguminja við ströndina í Sveitafélaginu Álftanesi.
Hrafnhildur kynnir fyrir gestum starfsemi Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Á innan við fimm árum hefur Selasetrinu tekist að skapa sér sess sem mjög áhugaverður viðkomustaður sem byggir á því að nýta auðlindir náttúru og samfélags með þeim hætti að komandi kynslóðir fái notið þeirra.
Allir velkomnir á fundinn og það er frítt inn.





