Á döfinni
14. janúar 2010
Bóndadagurinn nálgast
Félag harmonikuleikara í Reykjavík heldur í samvinnu við safnið harmonikuball. Ballið verður sunnudaginn 17. janúar frá kl. 15:00-17:00. Í tilefni bóndadagsins er um að gera að liðka bóndann til með gömlu dönsunum undir dillandi harmonikuleik.
Aðgangur er 1000 kr. en frítt fyrir 12 ára og yngri.
Boðið upp á kaffi, gos og meðlæti til sölu í Betri stofunni.

Ćtla Félag harmonikuleikar í Reykjavík og safnið að gera þetta að mánaðarlegum viðburði. Næsta ball verður á konudaginn þann 21. febrúar. Þá ættu herrarnir að vera orðnir færir í flestan sjó, eftir æfinguna á bóndadaginn, og sveifla frúnni undir taktfastri músík harmonikufélaganna milli kl. 15:00-17:00.
Sunnudaginn 14. mars skemmtir fólk sér yfir góðum árangri þjálfunarinnar og dansar eins og lífið sé að leysa.
Um sumarmál í apríl er síðan sjálfkjörið að sýna unga fólkinu taktana, þannig að dansarfurinn berist áfram.
Lokadagurinn 11. maí var mikill gleðidagur sjómanna. Okkur þykir því tilvalið að ljúka balldagskrá vetrarins með dúndur bryggjuballi sunnudaginn 9. maí.