Á döfinni
9. febrúar 2010
Safnanótt 2010
Föstudaginn 12. febrúar verður safnanótt haldin hátíðleg. Verður mikið um að vera bæði inná safninu og í Varðskipinu Óðni. Frábær fjölskylduskemmtun og frítt inn. Húsið opnar kl. 19:00 og allir velkomnir.

Dagskrá:
Kl. 19:00 - Leiklistin og hafið. Leikminjasafn Íslands opnar sýninguna Leiklistin og hafið í Betri stofu Sjóminjasafnsins. Sýningin bregður upp mynd af því hvernig þessi höfuðatvinnuvegur þjóðarinnar hefur náð að seytla inn í verk leikskáldanna frá fyrstu tíð og birst okkur á fjölum leikhúsanna, í sjónvarpi og á tjaldi kvikmyndahúsanna.
Kl. 19:30 og 21:00 - Svabbi og sæskrímslin. Eru sæskrímsli draumur eða veruleiki? Svabbi sjóari úr Stundinni okkar fræðir börn og fullorðna í Verbúðinni um sæskrímsli og drauma.
Kl. 20:00 - Hart í bak. Gunnar Eyjólfsson leikari flytur einræðu úr leikritinu Hart í bak á dekki Gullfoss í Bryggjusalnum. Atriðið er hluti af sýningunni Leiklistin og hafið.
Kl. 20:00-22:00 - Ratleikur um borð í Óðni. Skemmtilegur ratleikur fyrir alla fjölskylduna í hinu einstaka varðskipi Óðni sem hvílir við bryggju safnsins.
Kl. 20:30-22:00 - Fyrrum borgarfulltrúar Guðrún Ögmundsdóttir og Sigrún Magnúsdóttir gerast spákonur á draumkenndri safnanótt.
kl. 22:00-23:30 - Bryggjuball. Harmonikufélag Reykjavíkur leikur fyrir dansi á bryggjuballi í Bryggjusalnum. Skemmtun fyrir alla fjölskylduna.





