Á döfinni
3. mars 2010
Íslenska vitafélagiđ
Fimmtudaginn 4. mars verður mánaðarlegur fræðslufundur Íslenska vitafélagsins - félag um íslenska strandmenningu. Fundurinn hefst kl. 20:00, frítt er inn og léttar veitingar til sölu á kaffihúsinu.

Fyrirlesarar kvöldsins verða Helga Katrín Tryggvadóttir og Kristján Sveinsson sem á stundum hefur verið stjórnarformaður í Vitafélaginu.
Katrín flytur erindið Ţær fiska sem róa og segir hún þar frá rannsókn sem hún gerði fyrir samgönguráðuneytið árið 2008. Markmiðið var að kanna fjölda þeirra kvenna sem sækja sjóinn á Íslandi, starfsaðstæður, upplifun af starfinu og viðhorfum samfélagsins. Hlutfall kvenna af sjómönnum hefur aldrei verið hátt en konur á Íslandi hafa þó stundað sjómennsku um aldir. Ekki virðist mikið um mismunun eða fordóma í garð kvenna hérlendis og skýringin á því hvers vegna konur stunda ekki sjómennsku í meira mæli má finna í menningarlegum normum fremur en ótta við fordómum.
Kristján Sveinsson sagnfræðinur gaf út fyrir nokkru áhugaverða bók, Hafnir Íslands. Kristján var einnig einn af höfundum bókarinnar Vitar á Íslandi. Kristján ætlar að fræða gesti um þennan merka menningararf.