Á döfinni
6. apríl 2010
Vorfagnađur og ađalfundur íslenska Vitafélagsins
Í vetralok kveður íslenska Vitafélagið vetur og fagnar sumri með aðalfundi, málþingi og samverustund frá kl. 12:00-17:00 þann 10. apríl næst komandi. Fyrirlestrar á vegum félagsins verða þrír að þessu sinni.
Fyrsti fyrirlesarinn verður Valdimar Harðarson landslagsarkitekt og flytur hann fyrirlesturinn Tiltektarhöndin. Þegar vorsólin hellir geislum sínum yfir land og þjóð rennur tiltektaræði á marga landsmenn þegar þeir sjá illa hirt menningarverðmæti gægjast undan fannferginu. Í stað þess að hlúa að þeim og nýta til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar hendir hugsunarlaus tiltektarhöndin þeim á hauga eyðingar eins og hverju öðru rusli.
Siglir mitt fley - samstarf Nordnorsk fartöyvernsenter og batmuseum og Síldarminjasafns Íslands fæddi af sér gullfallegan trébát og aflaði báðum aðilum þekkingar í smíði trébáta og bátaverndar. Örlygur Kristfinnsson, forstöðumaður Síldaminjasafnsins segir frá þessu samstarfsverkefni þjóðanna.
Þriðji fyrirlesari dagsins mun vera Jón Ragnar Daðason bátasmiður, hann flytur fyrirlesturinn Smíði, áhöld og varðveisla trébáta, þar fjallar hann um smíði trébáta á Íslandi og höld til bátasmíða. 





