Á döfinni
9. ágúst 2010
Sýning Finleif Mortensen
Sýning færeyska málarans Finleif Mortensen hefur verið sett upp á ný í Víkinni. Sýningin var opnuð á Hátið hafsins og vakti verðskuldaða athygli, en Finleif er mótaður í myndlistinni af hinni einstöku færeysku náttúru og hinni sérstöku birtu. Málverkin á sýningunni eru olía á striga og sérlega máluð fyrir þessa sýningu. Þau eru öll til sölu og eru til sýnis í Betri stofunni. Sýningin stendur nú til 5. septembera.
Sýningin var opnuð á Hátið hafsins og vakti verðskuldaða athygli, en Finleif er mótaður í myndlistinni af hinni einstöku færeysku náttúru og hinni sérstöku birtu. Leikurinn milli hinna bláagrænu og rauðleitu lita túlkar þetta og útkoman er einstök upplifun á tungumáli sem sameinar mann og náttúru.
Listamaðurinn ólst upp í þorpinu Argir rétt utan við Torshöfn. Frumraun Finleifs Mortensen var árið 1985 Olavsøkusýningunni fyrir valda listamenn í Færeyjum. Síðan þá hefur hann verið með fjölmargar einkasýningar í galleríum og listasöfnum bæði í Færeyjum og Danmörku.
Eins og Impressionistarnir leitast Finleif við að leysa upp skýrar útlínur. Húsaþyrpingar renna saman í litatónum er flæða út í hið síbreytilega ljós. Niðurstaðan er sambland af litum náttúrunnar en undirliggjandi er eitthvað hverfullt og ljóðrænt. Abstrakt tjáning, þar sem figurativ náttúran er aðeins sýnileg.
Þó að upphafspunktur verkanna sé lítið þorp, hafið, fjöllin og birtan þá er aðal markmiðið gleði og ánægja að mála myndirnar og fólk upplifi þá gleði í verkunum.
Málverkin á sýningunni eru olía á striga og sérlega máluð fyrir þessa sýningu. Verkin, sem eru öll til sölu, eru til sýnis í Betri stofunni og stendur sýning til 5. september 2010.





