Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

17. ágúst 2010

Menningarnótt á Grandanum

Líf og fjör verður á Grandanum á Menningarnótt. Víkin muní samvinnu við Bryggjuna - kaffihús og nágranna sína hjá CCP bjóða upp á fjölskylduhátið á gamla slippasvæðinu og verbúðirnar Grandagarðsmeign verða opnar fyrir gestum og gangandi. Þá mæta þrír kórar frá Lettlandi, Litháen og Finnlandi og taka lagið í Betri stofunni og hljómsveitin The Way Down spilar á sama stað. Um kvöldið verður slegið upp heljarinnar harmónikkuballi í Verbúð nr. 17.

Víkin og Bryggjan og verða opin til kl. 22 og að sjálfsögðu gefst gestum kostur á að kaupa veitingar og njóta útsýnis yfir gömlu höfnina af nýjum bryggjupalli safnsins. Varðskipið Óðinn verður opið og þar taka gamlir sjóarar á móti gestum.

Í tilefni dagsins verður boðinn sérstakur fjölskylduafsláttur inn á safnið, frítt inn fyrir börnin og foreldrarnir fá tvo miða á verði eins.

Dagskrá:

Kl. 13:00 – Karnival fjölskylduhátíð hefst á gamla slippasvæðinu.  Ævintýragarður með hoppiköstulum og róla yfir sjóinn.

Kl. 14:00- Kórinn Talava frá Lettlandi flytur lög í Betri stofu.

Kl. 15:00- Kórinn Zemaiciai frá Litháen syngur í Betri stofu.

Kl. 16:00- Kórinn Teljä Chamber Choir frá Finnlandi flytur lög í Betri stofu.

Kl. 17:00- Hljómsveitin The Way Down spilar í Betri stofu

 Kl. 19:00 Hoppukastalar teknir niður.

 Kl. 20:00 Harmonikuball í Verbúð nr. 17 - Grandagarðsmegin.

 Kl. 22:00 Menningarnótt lýkur á Grandanum.


Senda á Facebook

Viđburđatal