Á döfinni
16. september 2010
Vetraropnun
Frá og með 15 september hefst vetraropnun á safninu, en í vetur verður opið alla daga frá 11 til 17, nema það verður lokað á mánudögum. Varðskipið Óðinn verður sömuleiðis opinn, en með öðru sniði. Eingöngu verður farið með leiðsagnir út í skipið, kl. 13, 14 og 15 ef það eru 3 gestir eða fleiri.
Í ár er Varðskipið Óðinn 50 ára gamall og í tilefni að afmælinu verður gefinn út bók um hann nú fyrir jólin. Sömuleiðis kemur út DVD diskur um skipið.
Einnig er á döfinni að breyta um sýningar á safninu en allt þetta verður auglýst síðar.





