Á döfinni
24. nóvember 2010
Fundur íslenska vitafélagsins
Íslenska Vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu heldur fund laugardaginn 4. desember frá kl.11-13 um norræna strandmenningarhátíð sem verður haldin í fyrsta skipti sumarið 2011. Sigurbjörg Árnadóttir, formaður ætlar að kynna hátíðina sem verður haldin á Húsavík.
Meðal þess sem verður á dagskrá hátíðarinnar sumarið 2011 verður handverk, tónlist, matur, ráðstefnur og málþing.
Allir velkomnir á fund íslenska Vitafélagsins





