Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

1. desember 2010

Fundur íslenska vitafélagsins

Laugardaginn 4. desember næstkomandi ætlar Íslenska Vitafélagið að halda fund í Betri Stofu safnsins.

Yfirskrift fundarins að þessu sinni eru:

Svipmyndir úr síldarbæ og norræn strandmenningarhátíð sumarið 2011

Dagskrá fundarins:

Anita Elefsen, sagnfræðinemi og starfsmaður Síldarminjasafns Íslands les valinn kafla úr nýrr bók Örlygs Kristfinnssonar Svipmyndir úr Síldarbæ. Bókin er safn eftir síðustu öld. Nefndir eru til sögunnar Sveini sífulli, Daníel Þórhalls, Gústi guðsmaður, Fúsi Friðjóns, Vaggi í Bakka, Maggi á Ásnum, Nörgor, Tóri, Óli Tór, Bjössi Frímanns, Vignir hringjari, Guðmundur góði, Jón Þorsteins, Hannes Beggólín, Jói bö og Schiöth. Örlygur dregur upp lifandi og skemmtilegar myndir af eftirminnilegu fólki. Þær eru færðar í letur af spriklandi fjöri og einlægri virðingu fyrir viðfangsefninu.

Sail Húsavík - norræn strandmenningarhátíð sumarið 2011

Á fundinum ætlar Sigurbjörg Árnadóttir, formaður íslenska vitafélagsins, að kynna hátíðina sem verður haldin í júlí 2011 á Húsavík. Að hátíðinni standa norræn félögá sviði strandmenningar, ásamt heimamönnum og er hún sú fyrsta sinnar tegundar. Handverk, tónlist, matur, ráðstefnur og málþing er meðal þess sem á dagskránni verður að finna.

Fundur hefst stundvíslega kl.11 og stendur til kl.13.

 

Allir velkomnir!


Senda á Facebook

Viđburđatal