Á döfinni
15. mars 2011
Ný sýning á safninu!
Ásmundur Guðmundsson fæddist árið 1929 á Ytri-Veðraá, Mosvallahreppi, sonur hjónanna Guðmundar Þorkels Jónssonar og Ástu Ólafar Þórðardóttur. Ásmundur giftist Sigríði Bjarney Einarsdóttur kennara árið 1957. Sonur hennar og fóstursonur Ásmundar er Einar Eysteinn Jónsson, fæddur 1950, læknir í Vestmannaeyjum.

Ásmundur tók hið minna mótorvélstjórapróf Fiskifélags Íslands 1948, lauk hinu meira fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1951 og farmannaprófi frá sama skóla 1953. Hann starfaði sem skipstjóri á millilandaskipum til 1975, fékk hann þá alvarlegt heilablóðfall, aðeins 46 ára að aldri. Við áfallið missti Ásmundur talmálið sem og máttinn í hægri hluta líkamans. Hann náði með miklum viljastyrk og ómetanlegri hjálp iðjuþjálfa á Grensásdeild að þjálfa upp vinstri höndina, sem hann notar nú til vinnu og athafna, m.a. til þess að skera út og mála. Ásmundur býr að Árskógum, þjónustuíbúðum eldri borgara í Breiðholti. Þar hefur hann aðgang að smíðastofu og hefur leiðbeinandinn Einar Jónasson hvatt Ásmund áfram í útskurðarlist sinni. Bera verk Ásmundar vott um mikla listgáfu og tilfinningu fyrir lögun og formi. Myndefnið sækir hann í íslenska náttúru og hefðbundin störf íslenskrar alþýðu fyrri tíma.

Sýningin stendur frá 15. mars til 15. maí 2011





