Á döfinni
30. mars 2011
Safninu afhent gjöf

Fimmtudaginn 24. mars sl. færðu barnabörn Þorgríms Jónssonar (1878-1945) fyrrverandi stýrimanns, safninu að gjöf líkan af kútter Höfrungi, smíðuðu af Þorgrími sjálfum á árunum 1915 - 1920. Þakkar safnið kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf og býður gesti safnsins velkomna að kíkja á gripinn!






