Á döfinni
4. júní 2011
Fjórar nýjar sýningar á safninu
Sýningar fjórar eru þessar:

Björtum öngli beitirðu
Sýningin er byggð á kveri Jóns Sigurðssonar forseta frá 1859, Litlu Fiskibókinni, um fiskveiðar og fiskverkun. Sjóminjasöfnin í Reykjavík og á Ísafirði hafa sameinast um þetta verkefni i samstarfi við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar.
Síldarævintýrið
Dergin er upp mynd af ævintýraheimi síldaráranna með ljósmyndum Hauks Helgasonar, kvikmynd Sigurðar Helgasonar og munum tengdum síldveiðum.

Call of the Sagas
Finnsk sýning um sjóferð á opnum báti frá Finnlandi til Íslands. Tveir voru í áhöfn en ferðin var farin til þess að heiðra fornar siglingaleiðir víkinga.
Vatnslitamyndir Ólafs Thorlaciusar
Ólafur starfaði um árabil hjá Landhelgisgæslu Íslands sem kortagerðamaður. Hann hefur nú látið af störfum og málar sér til skemmtunnar.





