Á döfinni
14. október 2011
Saltfiskveisla viđ sjóinn!
Stórkostleg saltfiskveisla verður haldin í Víkinni - Sjóminjasafni Reykjavíkur þann 29. október í samstarfi við Byggðarsafn Vestfjarða. Boðið verður upp á glæsilegt hlaðborð saltfiskrétta (sjá matseðil hér neðst á síðunni) sem þekktir matgæðingar töfra fram, og hráefnið er m.a. fengið af saltfiskreitum Byggðarsafns Vestfjarða.

Saltfisksveit Villa Valla mun leika töfrandi tóna undir borðhaldi sem heldur svo áfram í dansleik fram eftir kvöldi. Hljómsveitin hefur á að skipa mörgum af helstu snillingum íslenskrar tónlistar. Auk Villa Valla sjálfs eru það Jóhanna Þórhallsdóttir, söngkona, Tómas R. Einarsson bassaleikari, Páll Torfi Önundarson gítarleikari, Þórir Baldursson hljómborðsleikari og Matthías Hemstock trommari. Húsið opnar kl. 19.00 og mund borðhald hefjast kl. 20.00. Fordrykkur í boði hússins. Leikið verður fyrir dansi til kl. 01.00. Verð kr. 6900. Verið velkomin!

Matseðill:
- Ítalskt saltfiskrísottó með parmesanosti
- Saltfisktartar með söl, vorlauk og sítrusávöxtum
- Grafinn saltfiskur með ákavíti og kryddjurtum
- Saltfiskmús með bökuðum hvítlauk og ólífuolíu
- Saltfisksalat með appelsínum, ólífum og blaðlauk
- Makirúllur með saltfisktartar hrognum og wasabi
- Steiktur saltfiskur grenoble með kapar, smjöri og sítrónum
- Bacalao de Tómas með hvítlauk, fennel og tómat
- Katólónskur saltfiskur með möndlum, papriku og rauðvíni
- Saltfiskbollur með hnetum og hvítlauk
- Innbakaður saltfiskur með spínati, grjónum og lauk
- Saltfiskur Provencale með eggjum, grænmeti og krækling
- Bökuð saltfisk moussaka með eggaldin og kartöflumauki

Verði ykkur að góðu!





