Á döfinni
31. október 2011
Íslenska vitafélagiđ - frćđslukvöld

Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu stendur fyrir fræðslukvöldi í fyrirlestraröðinni Spegill fortíðar- silfur framtíðar á þriðjudaginn kemur í Sjóminjsafninu Víkinni, Grandagarði.
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir, atvinnu- og hlunnindaráðgjafi Bændasamtaka Íslands, ræðir um íslenskan æðardún og náttúruleg verðmæti hans. Hún fer yfir sögu æðarræktar á Íslandi og segir frá einstöku og fallegu vinasambandi sem hefur þróast milli æðarbænda og þessa villta fugls. Guðbjörg fjallar um eiginleika æðardúns og verkun hans og framleiðsluferli allt frá dúntekju úr hreiðri þar til hann er kominn í hendur endanlegra kaupenda í sæng eða annarri dúnvöru.
Markaðshlutdeild íslensks æðardúns er um 80-90% á heimsmarkaði æðardúns og því ljóst að um mjög sjaldgæfa og verðmæta afurð er að ræða. Guðbjörg mun ennfremur segja frá þeirri vinnu sem er hafin við að styrkja fullframleiðslu vara hér heima og ræða ýmis atvinnutækifæri tengd ferðaþjónustu og æðarfugli.
Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin, Grandagarði.
Miðvikudagskvöldið 2.nóvember kl. 20:00





