Á döfinni
23. nóvember 2011
Jólamarkađur á safninu 11. desember

Jólamarkaður við sjóinn!
Sunnudaginn 11. desember verður haldinn jólamarkaður í Víkinni – Sjóminjasafni Reykjavíkur, Grandagarði 8. Á markaðnum verður ýmislegt skemmtilegt, vandað og öðruvísi handverk ásamt listmunum til sölu. Harmonikkuleikari mun spila jólalög og heitt verður á könnunni á Bryggjunni, kaffihúsi safnsins. Næg bílastæði. Jólaföndur fyrir börnin. Sannkölluð jólastemmning við sjóinn!
Safnið verður að sjálfsögðu opið sem og safnbúðin.
Verið Velkomin!
Vinsamlegast athugið að ekki verða allir söluaðilar með posa






