Á döfinni
25. nóvember 2011
Teikningar Jóns Baldurs Hlíđberg í Verbúđinni
Laugardaginn 26. Nóvember opnar sýning á teikningum Jóns Baldurs Hlíðberg í Víkinni – Sjóminjasafni Reykjavíkur. Jón Baldur sýnir þar myndir af fiskum, hryggleysingjum og kynjaskeppnum ásamt stuttu kynningamyndbandi um störf sín sem teiknari. Jón Baldur verður á staðnum á laugardaginn milli 15 og 17 og spjallar við gesti og gangandi. Verið velkomin.
Jón Baldur hefur myndskreytt fjölda bóka. Fyrst ber að nefna þrjú stórvirk
i í ritröðinni Alfræði Vöku-Helgafells; Íslenskir fuglar (1998), Íslensk spendýr (2004) og Íslenskir fiskar (2006). Bækurnar eru skrifaðar af færustu vísindamönnum landsins á sínu sviði og prýddar einstökum vatnslitamyndum Jóns. Bækurnar eru í stóru og fallegu broti með miklum fjölda teikninga, korta og skýringarmynda. Í raun gera teikningarnar það að verkum að bækurnar eru ekki aðeins heillandi fróðleiksnáma heldur einnig glæsilegar listaverkabækur. Af fleiri bókum sem Jón hefur myndskreytt má nefna Sjávarnytjar við Ísland (1998) þar sem nytjastofnum í hafinu umhverfis Ísland er lýst og Ísfygla (1996) þar sem pennateikningar hans af fuglum gæða ítarlega fuglaumfjöllun og frásögn kryddaða þjóðtrú og þjóðsögum lífi. Árið 1997 kom út fuglaskoðunarbókin Birdwatching in Iceland þar sem Jón Baldur er meðhöfundur texta og leggur til teikningar. Íslenskir hvalir fyrr og nú (1997) er ætluð til hvalaskoðunar og er prýdd vatnslitamyndum. Teikningar og vatnslitamyndir eftir Jón hafa einnig birst í ýmsum útgáfum, svo sem bæklingum, fræðsluskiltum, frímerkjum, kennslubókum, tímaritum og vefsíðum.
Við vinnu sína þykir Jóni best að hafa sjálfa fyrirmyndina á staðnum, á þann hátt verður myndlýsingin bæði rétt og nákvæm. Í þessu sambandi má nefna að við teiknun allra fiska sem finnast í hafinu við Ísland, sem m.a. birtust í bókinni Íslenskir fiskar (2006), hafði Jón í 90% tilvika raunverulegar fyrirmyndir að verkum sínum. Margar af þessum tegundum eru mjög sjaldséðar og því auðséð að aðstaða teiknara til slíkra verka er einstök hér á landi. Jón Baldur hefur dregið ófáar lífverur í vinnustofuna heima hjá sér en sú stærsta er hámeri 2,40 m löng!

Jón Baldur Hlíðberg fæddist í Reykjavík árið 1957. Hann stundaði nám við Myndlistarskólann í Reykjavík 1982-83 og Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1983-85.
Jón Baldur hefur haft myndlýsingar að meginstarfi og myndskreytt fjölda kennslubóka, korta og fræðirita, auk annarra rita sem tengjast náttúrufræði. Jón hefur verið fuglaskoðari frá blautu barnsbeini og starfað sem leiðsögumaður erlendra fuglaskoðara um árabil.
Jón Baldur Hlíðberg fæddist í Reykjavík 1957. Hann ólst upp í Garðabæ í náinni snertingu við fjölbreytta náttúru og austur á héraði þar sem hann var nokkur sumur í sveit. Fljótt tók að bera á miklum áhuga á náttúrufræði þó einkum fuglum. Þessi áhugi á fuglum sameinaðist teikniáráttu sem síðan varð til þess að hann fór að sækja námskeið í teikningu við Myndlistaskólann í Reykjavík veturinn 1982-83. Þaðan lá leiðin í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, en þar var hann við nám 1983-1985. Strax að skóla loknum hóf hann störf við myndlýsingar þótt oft væru verkefnin stopul á þeim vettvangi í upphafi. Jón starfaði sem leiðsögumaður með náttúruskoðendur í fjölda ára. Fyrstu árin sinnti hann jafnframt teiknivinnunnni og leiðsögn við Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Hin síðari ár hefur Jón helgað sig algerlega teiknarastarfinu. Ennfremur hefur hann kennt teikningu við Myndlista- og handíðaskólann nú Listaháskóla Íslands. Jón Baldur hélt sína fyrstu einkasýningu í Hafnarborg í október 1999. Á heimasíðu Jóns www.fauna.is er að finna myndabanka þar sem 1800 myndir eru aðgengilegar.





