Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

5. janúar 2012

Frćđslukvöld Íslenska Vitafélagsins

Vitafelagid-viti

Spegill fortíðar -silfur framtíðar

Síld, síld og aftur síld...

Hún hefur verið köllur silfur hafsins og gull Íslands, enda gjörbreytti hún flestu sem hægt var að breyta.  Á fræðslukvöldi Íslenska vitafélagsins - félags um íslenska strandmenningu sem bera yfirskriftina Spegill fortíðar – silfur framtíðar, mun Steinar J. Lúðvíksson, rithöfundur fjalla um síldina - út frá því sjónarhorni hvaða þjóðfélagslega þýðingu síldveiðarnar höfðu á Íslandi frá því að þær hófust á seinni hlutu 19. aldar og fram yfir þann tíma sem hrunið mikla varð á árunum 1967 - 1968. Hvaða áhrif síldveiðarnar höfðu á búsetu í landinu og urðu m.a. til þess að vistabandð hélt ekki lengur. Hvernig síldveiðarnar gjörbreyttu öllu viðskiptaumhverfi almennings þar sem farið var að greiða verkalaun í peningum. Hvaða áhrif miklar sveiflur í síldveiðunum frá ári til árs höfðu á afkomu almennings. Fjalla um búferlaflutninga til og frá "síldarstöðunum", hvaða áhrif síldveiðarnar og síldarvinnslan hafði á verkalýðsbaráttuna á Íslandi og kannski síðast en ekki síst þau áhrif sem síldveiðarnar höfðu á tæknikunnáttu Íslendinga, t.d. veiðarfæragerð og notkun nýs veiðibúnaðar.  Og Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir segir frá því hvaða áhrif síldarvinnslan á sjötta og sjöunda áratugi síðustu aldar hafði á síldarstelpurnar á Austfjörðum?  Talsvert hefur verið skrifað um síldina og áhrif síldarinnar á samfélög og efnahag þeirra þorpa og bæja sem mest tóku á móti síldinni. Síldarstúlkan brosir á forsíðu bóka enda myndrænt tákn um allan hamaganginn. En hvernig var að vera síldarstelpa á þessum árum? Í þessum fyrirlestri er sagt frá þremur árum við söltun og tveimur árum í mjölverksmiðju á Seyðisfirð á árunum 1958-1962. 

Staður og stund: Víkin-sjóminjasafn, Grandagarði, Reykjavík.   Miðvikudaginn 11. janúar klukkan 20:00.

Verið velkomin!

www.vitafelagid.com


Senda á Facebook

Viđburđatal